Lífið

Fannst kuldinn á Íslandi áhugaverðastur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Asmahan Guesmi Bory fór meðal annars í hvalaskoðun þegar hún var á landinu. En það sem henni fannst langbest voru sundlaugarnar og rennibrautirnar.
Asmahan Guesmi Bory fór meðal annars í hvalaskoðun þegar hún var á landinu. En það sem henni fannst langbest voru sundlaugarnar og rennibrautirnar.
Hvað ert þú gömul Asmahan Guesmi Bory og hvar átt þú heima? „Ég er tíu ára og bý í París.“

Hvernig stóð á því að þú komst til Íslands? „Ég kom í júní í sumar að hitta pabba minn sem var að vinna í bíómynd með Sólveigu Anspach.“

Hvað fannst þér áhugaverðast? „Það sem mér fannst áhugaverðast við ferðalagið var í fyrsta lagi kuldinn því í Frakklandi eru sumrin heit, en svo var líka margt fleira sem kom á óvart.“

Hvað fannst þér skrítnast? „Birtan. Sólin sest aldrei! Fyrst fannst mér það truflandi. Eftir síðasta tökudaginn var veisla og við dönsuðum langt fram eftir kvöldi og þegar við fórum heim var mjög undarlegt að sjá að það var enn þá bjart úti, þrátt fyrir að klukkan væri orðin hálf ellefu um kvöld.“

Kynntist þú einhverjum Íslendingum? „Já, já, og mér fannst fólkið indælt. Íslendingar eru alltaf brosandi og mjög kurteisir.“

Skoðaðir þú eitthvað af landinu og náttúrunni? „Meðan á dvöl minni stóð sá ég ótrúlega hveri, synti í Bláa lóninu og sá hvali í sjónum. En það sem mér fannst langbest voru sundlaugarnar og rennibrautirnar! Ég fór í sund á hverjum degi.“

Þú gætir sem sagt hugsað þér að koma aftur? „Jahá. Mér fannst æðislega gaman á Íslandi, það er fallegt land og þetta er án efa besta ferðalag ævi minnar! Takk fyrir mig!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.