Foreldrar komi að ráðningu skólastjóranna fanney birna jónsdóttir skrifar 21. apríl 2015 08:00 Kjartan Magnússon vill að foreldrar komi að ráðningu skóla- og leikskólastjóra. Það dragi úr líkum á því að óhæft fólk sé ráðið. Fréttablaðið/Vilhelm „
Allir eru sammála um mikilvægi þess að skólastarfi sé vel stjórnað og að vandað sé til verka þegar fólk er ráðið í skólastjórastörf. Í framsæknum skólakerfum erlendis hefur samstarf við foreldra stóraukist á undanförnum árum og eitt af því er samráð við foreldrana við ráðningu skólastjóra,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Fréttablaðið. Sjálfstæðismenn munu leggja fyrir borgarstjórn í dag breytingartillögu á samþykkt um skóla- og frístundaráð sem kveður á um að við ráðningu í stöðu skólastjóra og leikskólastjóra skuli gefa foreldrafélagi og skóla/foreldraráði viðkomandi skóla kost á virku samráði um málið. Kjartan segir að meirihlutinn hafi nú þegar fellt tillöguna á vettvangi skóla- og frístundaráðs. „Það er slæmt, því ég er viss um að það yrði til mikilla hagsbóta fyrir skólastarf í Reykjavík að tekið yrði upp samráð með þessum hætti.“ Kjartan spyr hvort ekki sé jákvætt að foreldrar barnanna, skattgreiðendurnir, fái hið minnsta tækifæri til að tjá sig áður en skólastjóri er ráðinn. „Þetta mun örugglega draga úr líkum á því að óhæft fólk sé ráðið því erlendis tíðkast það til dæmis að foreldrafélög kanna fortíð umsækjenda með því að vera í sambandi við foreldrafélag þess skóla sem hann starfaði áður hjá,“ segir Kjartan.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar Sjá meira