Ákæra í heimilisofbeldismáli fyrir dómi: „Ég er hamingjusöm í dag. Ég er frjáls“ Birgir Olgeirsson skrifar 21. apríl 2015 13:51 „Ég óttaðist að hann vildi meiða mig,“ sagði kona við aðalmeðferð í heimilisofbeldismáli sem fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Vísir/Getty
Karlmaður á fimmtugsaldri neitaði sök við aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn honum sem fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Er maðurinn ákærður fyrir líkamsárásir og hótanir gagnvart þáverandi eiginkonu sinni. Hann er sakaður um að hafa sparkað í andlit konunnar þar sem hún hélt á tveggja ára gömlum syni þeirra í fanginu. Þá er hann sagður hafa lagt hníf upp að hálsi hennar og hótaði að skera höfuð hennar af ef hún gerði eitthvað rangt eins og frá er greint í ákæru. Ákært er fyrir tvær líkamsárásir á heimili þeirra í Reykjavík. Sú fyrri í ágúst 2012 þegar maðurinn á að hafa dregið konu sína inn á baðherbergi þeirra þar sem hann reyndi að ýta höfði hennar ofan í klósett. Þá er honum gefið að sök að hafa ógnað hann henni með hnífi og kastaði hnífnum á eftir konunni þegar hún forðaði sér út af heimilinu og leitaði aðstoðar hjá nágrönnum.Með tveggja ára gamalt barn í fanginu Síðari líkamsárásin varð ári síðar og er ákært fyrir líkamsárás og hótanir gagnvart konunni en einnig brot á barnaverndarlögum. Á maðurinn að hafa veist að konunni í hjónaherbergi þeirra þar sem hún lá með tveggja ára gamalt barn þeirra og sparkað í andlit hennar og læri auk þess að hafa slegið hana í andlit og maga. Þá er maðurinn ákærður fyrir að leggja hníf upp að hálsi konunnar og sakaður um að hafa hótað því skera höfuðið af ef hún hlýddi honum ekki. „Með framangreindri háttsemi beitti ákærði son sinn ógnunum og sýndi honum yfirgang og ruddalegt athæfi,“ eins og segir í ákærunni. Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Maðurinn á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Þá krefst fyrrverandi kona hans 900 þúsund króna í skaða- og miskabætur.Mikið rifist „Ég gerði ekkert af þessu sem fram kemur í ákærunni,“ sagði maðurinn við aðalmeðferðina þegar hann var beðinn um að tjá sig um sakarefnin. Þegar hann var beðinn um að lýsa atburðarásina í ágúst árið 2012 eins og lýst er í ákærunni sagði hann þau hjónin hafa rifist þann dag. Sagði hann rifrildið hafa snúist um málefni sem þau höfðu rifist stanslaust um. Hann vill meina að eiginkona sín hefði viljað senda peninga til ættingja í öðru landi. Hann sagðist aldrei hafa gripið til hnífs en eiginkonan hans fyrrverandi sagðist muna vel eftir honum. „Ég man eftir því að hann greip hnífinn, þetta var stór hnífur,“ sagði konan í dómssal. „Ég var hrædd. Þetta er ekki venjulegur hnífur,“ sagði konan og bætti við að ekki hefði verið um venjulegan eldhúshníf að ræða heldur lýsti hún honum sem sveðju. „Ég óttaðist að hann vildi meiða mig.“„Ásakaði mig um óheyrilega hluti“ Seinni líkamsárásin átti sér stað í ágúst ári síðar. Þá voru foreldrar konunnar á heimili þeirra hjóna og höfðu blandað sér í rifrildi á milli þeirra tveggja. Í máli saksóknara kom fram að lögreglumaður hefði skrifað í skýrslu vegna atviksins að áverkar hefðu verið sýnilegir á konu mannsins og föður hennar. Maðurinn sagðist ekki muna vel eftir þessu umrædda kvöldi en eftir því sem hann best veit gerði hann ekki neitt. Konan sagðist hafa verið í sturtu þetta umrædda kvöld og hún hafi ákveðið að læsa ekki baðherberginu því margir voru í húsinu og sú staða gæti komið upp að einhver þyrfti að nota baðherbergið. Maðurinn hennar hefði til að mynda gert það. Þá hefði faðir hennar ætlað inn á baðherbergið en þegar honum varð ljóst að dóttir hans var þar í sturtu fór hann strax út. Það varð hins vegar til þess að reita manninn til reiði. „Hann sakaði mig og föður minn um að hafa gert eitthvað inni á baðherbergi. Hann hló brjálæðislega og lét eins og ég og faðir minn hefðum gert eitthvað ósæmilegt inni á baði. Ég var orðlaus. Ég gat ekki sagt neitt eða brugðist við. Hann ásakaði mig um óheyrilega hluti sem ég átti engin orð yfir,“ sagði konan.Kölluðu til lögreglu „Ég óskaði skýringa hvað hefði gerst inn á baðherbergi,“ sagði maðurinn þegar hann var spurður út í þetta atvik. Svo fór að foreldrar konunnar drógu hana og börnin inn í stofu og varnaði faðir hennar för mannsins inn í stofuna með því að setja borð fyrir stofuhurðina. Var lögreglan kölluð til og fjarlægði hún manninn af heimilinu. Konan leitaði til Kvennaathvarfsins tvisvar samkvæmt því sem fram kom við aðalmeðferðina en í dag er þau skilin. „Ég er hamingjusöm í dag. Ég er frjáls,“ sagði konan og bætti við að þessi tími í lífi hennar hefði valdið henni vanlíðan og hún ekki treyst sér að fara á staði þar sem hún óttaðist að hitta manninn. Hún sagðist vera frelsinu fegin. „Ég er frjáls og get tekið mínar eigin ákvarðanir.“
Tengdar fréttir Lagði hníf að hálsi barnsmóður fyrir framan tveggja ára barn þeirra Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárásir og hótanir gagnvart þáverandi eiginkonu sinni og ungu barni þeirra. 5. febrúar 2015 15:12 Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Innlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira
Lagði hníf að hálsi barnsmóður fyrir framan tveggja ára barn þeirra Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárásir og hótanir gagnvart þáverandi eiginkonu sinni og ungu barni þeirra. 5. febrúar 2015 15:12