Hjúkrunarráð LSH: Hjúkrunarleigur ekki lausn á mönnunarvanda Atli Ísleifsson skrifar 22. júlí 2015 14:55 Hjúkrunarráð skorar á stjórnvöld að ná sáttum í launabaráttu hjúkrunarfræðinga. Vísir/Vilhelm
Hjúkrunarráð Landspítala varar við því að litið sé á hjúkrunarleigur sem lausn á mönnunarvanda hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðiskerfisins. Þetta kemur fram í ályktun hjúkrunarráðs Landspítalans um skammtímalausnir á mönnunarmálum spítalans. Hjúkrunarráð segir slíkar lausnir vera neyðarúrræði svo hægt sé að veita grunn neyðarþjónustu, líkt og veitt er í verkfalli. „Slík þróun myndi leiða af sér verulega faglega afturför, ógna þeirri uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað og hefta áframhaldandi uppbyggingu í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Stofnun hjúkrunarleiga kann að vera lausn til að halda hjúkrunarfræðingum og þar af leiðandi reynslu og þekkingu innan Landspítala í umönnun sjúklinga. Reynsla okkar á Landspítala og þeirra sem þekkja til erlendis sýnir að faglegar skyldur leigðra hjúkrunarfræðinga gagnvart stofnuninni eru ekki þær sömu og starfsmanna spítalans. Fagleg framþróun á þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra, hagræðing í rekstri, uppbygging á starfsemi, efling þverfaglegrar teymisvinnu, kennsla og fræðsla situr á hakanum. Stjórnendur Landspítala hafa þá minna um starfsþróun og símenntun hjúkrunarfræðinganna að segja. Sérhæfing og samfella í hjúkrun sjúklingahópa er gífurlega mikilvæg en reynslan sannar að hún fæst ekki ef mönnun fagaðilanna byggir á leigðum starfsafla. Starfsánægja hjúkrunarfræðinga og tryggð þeirra við stofnunina og skjólstæðinga hennar er það sem ríkisstjórnin á að leggja allt sitt kapp í að varðveita, hvort sem um ræðir Landspítala, spítala landsbyggðarinnar, heilsugæslu eða heimahjúkrun. Ef til hjúkrunarleiga kæmi gæti verið verulega erfitt, jafnvel ógerlegt að snúa til baka. Hjúkrunarráð skorar á stjórnvöld að ná sáttum í launabaráttu hjúkrunarfræðinga svo ekki þurfi að koma til þessara skammtímalausna sem gætu skaðað heilbrigðiskerfið umtalsvert,“ segir í ályktuninni.
Tengdar fréttir Æðstu stjórnendur heilbrigðismála krafðir svara Heilbrigðisráðherra, landlæknir og forstjóri Landsspítalans boðaðir á aukafund velferðarnefndar vegna ástandsins á Landsspítalanum. 21. júlí 2015 13:12 Formaður hjúkrunarráðs segir ummæli þingmanns lýsa vanþekkingu á rekstri spítala Segir reynslu Landspítalans af starfsmannaleigum ekki góða. 20. júlí 2015 21:15 Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Sjá meira
Æðstu stjórnendur heilbrigðismála krafðir svara Heilbrigðisráðherra, landlæknir og forstjóri Landsspítalans boðaðir á aukafund velferðarnefndar vegna ástandsins á Landsspítalanum. 21. júlí 2015 13:12
Formaður hjúkrunarráðs segir ummæli þingmanns lýsa vanþekkingu á rekstri spítala Segir reynslu Landspítalans af starfsmannaleigum ekki góða. 20. júlí 2015 21:15