Útboðsreglur brotnar í Sorpustöð á Álfsnesi Sveinn Arnarson og Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 23. mars 2015 07:00 Bygging jarðgerðarstöðvar á Álfsnesi yrði stórt skref í vinnslu sorps á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið/Valgarður „
Menn verða að vinna svona hluti á gagnsæjan hátt,“ segir Jón Þórir Franzson, framkvæmdastjóri Íslenska gámafélagsins, um úrskurð kærunefndar útboðsmála þess efnis að Sorpa bs. geti ekki skrifað undir samning við Aikan A/S um tæknilausnir og tæknilega ráðgjöf við uppbyggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi nema að undangengnu útboði. Íslenska gámafélagið og Metanorka kærðu fyrirhugaða samningsgerð Sorpu til kærunefndar útboðsmála síðastliðið haust. Kröfur kærenda voru þær að kærunefnd útboðsmála úrskurðaði á þá leið að Sorpu yrði gert að auglýsa útboð um tæknilausnir á EES-svæðinu. Í kjölfarið stöðvaði kærunefnd útboðsmála fyrirhugaða samningsgerð á meðan nefndin ynni að úrskurði. Jón Þórir segir úrskurð kærunefndarinnar vandaðan og að hann byggi á ítarlegri rannsókn nefndarinnar. „Nefndin telur að Sorpa þurfi að opna útboðsferlið aftur og bjóða út verkið. Við viljum taka þátt í því útboði og erum mjög spennt fyrir því,“ segir hann. „Við vonumst til að Sorpa standi við það en fari ekki að þráast við þetta aftur.“ Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Áður hafði Sorpa talið sig geta samið beint, án útboðs, við Aikan um notkun tæknilausna og ráðgjafar við uppbyggingu stöðvarinnar. Rök forsvarsmanna Sorpu voru á þá leið að aðeins einn bjóðandi kæmi til greina af tæknilegum ástæðum. Stjórn Sorpu samþykkti á fundi sínum 12. maí í fyrra að gengið yrði til samninga við Aikan á þessum grundvelli. Samkvæmt fundargerð þess fundar hafði stjórn Sorpu fengið ráðgjöf frá innkaupadeild Reykjavíkurborgar. Bygging gas- og jarðgerðarstöðvarinnar í Álfsnesi er viðamikið skref í umhverfismálum á höfuðborgarsvæðinu og er í samræmi við stefnu sem sveitarfélögin hafa mótað. Eftir að stöðin hefur starfsemi verður allur úrgangur sem safnað er frá heimilum á svæði Sorpu unninn í stöðinni. Lífrænu efnin verða nýtt til gas- og jarðgerðar, en málmar og önnur ólífræn efni verða flokkuð frá.
Tengdar fréttir Samningsgerð Sorpu við Aikan stöðvuð 5. nóvember 2014 08:47 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn fordæma vinnubrögð og framkomu ráðuneytisins Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira