Samningsgerð Sorpu við Aikan stöðvuð Svavar Hávarðsson skrifar 5. nóvember 2014 08:47 í álfsnesi Sorpa ætlar sér að snarminnka sorpurðun með tilkomu nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar. Fréttablaðið/Valli
Kærunefnd útboðsmála hefur ákvarðað að samningsgerð Sorpu bs. við Aikan A/S vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi verði stöðvuð tímabundið. Íslenska gámafélagið (ÍG) og dótturfyrirtæki þess, Metanorka ehf., kærðu samningsgerðina til nefndarinnar þann 9. október síðastliðinn með þeim rökum að hún stangist á við lög um opinber innkaup, og bjóða hefði átt verkið út til að gæta að miklum einka- og almannahagsmunum. Sorpa segist vera í fullum rétti og hafa haldið því fram að tæknilausn Aikan sé sú eina sem uppfylli markmið byggðasamlagsins um meðhöndlun lífræns heimilissorps, en tæknin gerir sorpflokkun óþarfa. Þessu hafa ÍG og Metanorka hafnað alfarið. Kærunefnd útboðsmála virðist fallast á að Sorpa hafi ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að aðrar lausnir séu ekki í boði, sem var kjarni kærunnar. Í ákvörðun kærunefndarinnar segir jafnframt að sá hluti samnings sem gerður er án útboðs skuli ekki vera hærri en jafngildi einnar milljónar evra, eða rúmlega 150 milljónir íslenskra króna. Þrátt fyrir endurteknar beiðnir Fréttablaðsins um upplýsingar um samningsgerðina, og hversu stórt hlutfall tæknilausnin er af um þriggja milljarða króna heildarkostnaði við framkvæmdina, hafa forsvarsmenn Sorpu kosið að halda þeim upplýsingum fyrir sig. „Af þeim gögnum sem liggja fyrir í máli þessu verður ekki annað ráðið en að verðgildi þeirra samninga sem standi til að gera við Aikan A/S um fyrirhugað verk kunni að vera umfram framangreinda fjárhæð,“ segir í ákvörðun kærunefndarinnar.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira