Vildi deila upplifun sinni og tók upp vélina Gunnar Leó Pálsson skrifar 12. ágúst 2015 08:00 Siggi Jensson er framleiðandi tónleikamyndar frá Eistnaflugi sem komin er út. vísir/Gva „
Ég fór á Eistnaflug árið 2008 í fyrsta sinn og varð svo heillaður af þessu að ég fór að hugsa, hvar eru myndavélarnar til að taka þetta upp?, og þá kviknaði hugmyndin um að taka upp tónleikana,“ segir þúsundaþjalasmiðurinn og tónlistarunnandinn Siggi Jensson. Hann heillaðist af hátíðinni og vildi deila upplifun sinni en gekk með hugmyndina um nokkurt skeið. „Ég ræddi svo við Stefán Magnússon, skipuleggjanda hátíðarinnar og við ákváðum að hjóla í þetta árið 2014, þegar hátíðin var haldin í tíunda skiptið og gáfum þetta út í ár þegar hátíðin átti tíu ára afmæli.“ Tónleikarnir eru nú komnir út, en um er að ræða 4 diska dvd-pakka með 46 hljómsveitum sem komu fram á hátíðinni og pakkinn inniheldur einnig heimildarmynd um hátíðina. „Ég er framleiðandinn, Hallur Örn Árnason er leikstjóri og meðframleiðandi myndarinnar er Grímur Hákonarson. Ég fékk fyrirtæki til þess að koma og taka upp tónleikana,“ segir Siggi. Verkefnið var að stórum hluta styrkt af fyrirtækjum í Fjarðabyggð. Hann hefur komið að kvikmyndatöku í Los Angeles og þekkir því til kvikmyndagerðar sem þessarar. Heimildarmyndin um hátíðina var til að mynda opnunarmynd á Reykjavik Shorts&Docs hátíðinni í Bíói Paradís. Þessi framleiðsla Sigga hefur fengið mikið lof og verður myndapakkinn til umjföllunar í merku erlendu rokktónlistartímariti. „Ég má því miður ekki nefna titil tímaritsins en það er svakalega mikill heiður að þeir ætli að fjalla um þetta.“ Pakkinn er fáanlegur á eistnaflug.is, 12 Tónum, Smekkleysu, Geisladiskabúð Valda.
Mest lesið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Lífið Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið Fleiri fréttir Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Sjá meira