Hefur verið ofsótt af manni í tuttugu ár Snærós Sindradóttir skrifar 25. júní 2015 09:00 Konan sem ofsótt hefur verið í tuttugu ár hefur verið elt af manninum og flúið þaðan sem hann kemur. NordicPhotos/Getty „
Lögreglan gerði ekkert. Það þótti ekki nóg að hann hótaði að koma heim til mín í bræðiskasti, hann hefði þurft að vera mættur inn á stofugólf,“ segir kona, sem var ofsótt um margra mánaða skeið af gömlum kunningja. Konan gagnrýnir viðbrögð lögreglu sem hún segir að hafi verið áhugalaus um þá hættu sem að henni steðjaði. Maðurinn setti sig í samband við konuna í október á síðasta ári. Hann vildi taka upp gömul kynni og var frekur á tíma hennar. Þegar hún reyndi að slíta samskiptum við manninn hóf hann að ofsækja hana. Maðurinn sendi henni ógnandi skilaboð í gegnum netið um það hvernig hann ætlaði að nauðga henni og hvers konar pyndingar hún þyrfti að þola af hendi hans. Ofsóknunum lauk nokkrum mánuðum síðar þegar fjölskylda mannsins greip inn í. Önnur kona, sem Fréttablaðið ræddi við, hefur þurft að þola ofsóknir í tuttugu ár. Hún vill ekki koma fram undir nafni þar sem ofsóknunum hefur ekki linnt enn. Konan hitti manninn sem ofsækir hana fyrst í Reykjavík þegar hún bjó sjálf í sjávarþorpi á Suðurlandi. Maðurinn óskaði eftir kynnum við hana sem hún neitaði. Það var þá sem ofsóknirnar hófust. Maðurinn heimsótti meðal annars heimabæ konunnar og spurðist fyrir um hana. Síðar lét hann þann orðróm ganga að hann væri faðir dóttur hennar og væri kominn til að hitta hana. Hann hefur ítrekað beðið fólk fyrir kveðju til hennar. Því segir hann að konan sé góð vinkona sín sem hann ann mjög heitt. Maðurinn hefur líka hringt heim til konunnar og elt hana á göngu um miðbæinn. Í gegnum árin hefur maðurinn bæði nálgast hana og dóttur hennar á förnum vegi. Hann hefur oft sent konunni póstkort í gegnum þriðja aðila frá öðrum löndum. Þá sér hún hann oft fyrir utan heimili sitt og vinnu. Konan segist hætt að óttast að maðurinn vinni henni mein. Hún hefur þó áhyggjur af því að maðurinn, sem virðist hafa tengst dóttur hennar, muni snúa sér alfarið að ofsóknum á hendur henni. Henni þyki hræðileg tilhugsun að dóttirin, sem nú er á þrítugsaldri, hafi alltaf þurft að búa við ofsóknir og áreiti af hendi mannsins.Friðrik Smári BjörgvinssonUm það bil eitt hundrað konur hafa leitað til Kvennaathvarfsins á síðustu fimm árum vegna ofsókna. Ofsóknirnar eru oftast af hendi fyrrverandi maka eða kærasta. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir mál sem þessi oft flókin. „Ef menn eru ekki að brjóta neitt af sér þá er erfitt fyrir lögreglu að aðhafast. Ef það er ekki nálgunarbann í gildi þá er ekkert sem bannar fólki að vera fyrir utan hús eða að hringja. Það verður þá að vera komið upp á eitthvað ákveðið stig til að hægt sé að meta það sem brot á friðhelgi. Lagaramminn er bara þessi.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Sjá meira