Lagaákvæði er lýtur að heimilisofbeldi væntanlegt Nadine Guðrún Yaghi skrifar 16. júní 2015 07:00 Framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf segir þungbært að kæra ofbeldisverk maka og vill að tekið verði tillit til þess. nordicphotos/getty
Refsiréttarnefnd, sem starfar á vegum innanríkisráðuneytisins, er að leggja lokahönd á samningu frumvarps um breytingar á hegningarlögum. Frumvarpið lýtur að nýju ákvæði um heimilisofbeldi. Á Íslandi er ekki að finna ákvæði sem tekur sérstaklega á ofbeldi sem beitt er í nánum samböndum heldur eru ákvæði almennra hegningarlaga látin nægja. Refsiréttarnefnd semur frumvarpið að beiðni Ólafar Nordal innanríkisráðherra og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nefndin að leggja lokahönd á gerð frumvarpsins. Sigþrúður Guðmundsdóttir„Ráðherra hefur ekki fengið frumvarpið á borð til sín og því getum við ekki sagt nákvæmlega hvaða breytingar verða gerðar á hegningarlögunum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarkona innanríkisráðherra. Þórdís staðfestir þó að verið sé að vinna í umræddu frumvarpi og að ráðherra eigi eftir að fara yfir það. „Stefnt er að því að ráðherra leggi frumvarpið fram í haust,“ segir Þórdís Kolbrún. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins felst frumvarpið í því að endurskoða refsilöggjöfina með hliðsjón af Istanbúlsamningi sem Ísland er aðili að. Samningurinn er alþjóðasamningur um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Með frumvarpinu er stefnt að því að mæta ákvæðum samningsins svo Ísland geti fullgilt hann. Þá hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að í frumvarpinu sé tekið á fyrningarreglum, en í dag er fyrningarfrestur vegna heimilisofbeldis sá sami og annarra ofbeldisbrota. „Með frumvarpinu langar okkur að sjá ótalmargt og þá aðallega að lögin skilgreini betur ofbeldi í nánum samböndum,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, sem fagnar væntanlegum breytingum á hegningarlögunum. „Sök vegna heimilisofbeldis fyrnist eftir sömu reglum og gilda um ofbeldi milli ókunnugra og þar með er ekki tekið tillit til þess hve þungbært er að kæra ofbeldisverk maka og hve erfitt er að gera það meðan á sambandinu stendur,“ segir Sigþrúður sem segist vilja sjá breytingar á fyrningarreglum meðal annars. Þá vill hún að umrætt lagaákvæði fjalli um heimilisofbeldi sem brotasamfellu en ekki sem einstakt afbrot hverju sinni eins og staðan sé í dag. „Við viljum sjá að það sé horft á heimilisofbeldi sem heildarpakka og viljum einnig vernd eftir að sambandi lýkur, til dæmis breytingar á reglum um nálgunarbann,“ segir Sigþrúður og bætir við að þó að sambandi ljúki milli ofbeldismanns og fórnarlambs sé ekki þar með sagt að öll hætta sé úti. Að lokum segist Sigþrúður vonast til þess að með lagabreytingunni verði sérstaða ofbeldisins viðurkennd. Samfélag Refsiréttarnefnd, sem starfar á vegum innanríkisráðuneytisins, er að leggja lokahönd á samningu frumvarps um breytingar á hegningarlögum. Frumvarpið lýtur að nýju ákvæði um heimilisofbeldi. Á Íslandi er ekki að finna ákvæði sem tekur sérstaklega á ofbeldi sem beitt er í nánum samböndum heldur eru ákvæði almennra hegningarlaga látin nægja. Refsiréttarnefnd semur frumvarpið að beiðni Ólafar Nordal innanríkisráðherra og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nefndin að leggja lokahönd á gerð frumvarpsins. „Ráðherra hefur ekki fengið frumvarpið á borð til sín og því getum við ekki sagt nákvæmlega hvaða breytingar verða gerðar á hegningarlögunum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarkona innanríkisráðherra. Þórdís staðfestir þó að verið sé að vinna í umræddu frumvarpi og að ráðherra eigi eftir að fara yfir það. „Stefnt er að því að ráðherra leggi frumvarpið fram í haust,“ segir Þórdís Kolbrún. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins felst frumvarpið í því að endurskoða refsilöggjöfina með hliðsjón af Istanbúlsamningi sem Ísland er aðili að. Samningurinn er alþjóðasamningur um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Með frumvarpinu er stefnt að því að mæta ákvæðum samningsins svo Ísland geti fullgilt hann. Þá hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að í frumvarpinu sé tekið á fyrningarreglum, en í dag er fyrningarfrestur vegna heimilisofbeldis sá sami og annarra ofbeldisbrota. „Með frumvarpinu langar okkur að sjá ótalmargt og þá aðallega að lögin skilgreini betur ofbeldi í nánum samböndum,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, sem fagnar væntanlegum breytingum á hegningarlögunum „Sök vegna heimilisofbeldis fyrnist eftir sömu reglum og gilda um ofbeldi milli ókunnugra og þar með er ekki tekið tillit til þess hve þungbært er að kæra ofbeldisverk maka og hve erfitt er að gera það meðan á sambandinu stendur,“ segir Sigþrúður sem segist vilja sjá breytingar á fyrningarreglum meðal annars. Þá vill hún að umrætt lagaákvæði fjalli um heimilisofbeldi sem brotasamfellu en ekki sem einstakt afbrot hverju sinni eins og staðan sé í dag. „Við viljum sjá að það sé horft á heimilisofbeldi sem heildarpakka og viljum einnig vernd eftir að sambandi lýkur, til dæmis breytingar á reglum um nálgunarbann,“ segir Sigþrúður og bætir við að þó að sambandi ljúki milli ofbeldismanns og fórnarlambs sé ekki þar með sagt að öll hætta sé úti. Að lokum segist Sigþrúður vonast til þess að með lagabreytingunni verði sérstaða ofbeldisins viðurkennd.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Sjá meira