Grunnur lagður að nýju húsnæðiskerfi Kolbeinn Óttar Proppé skrifar 30. maí 2015 07:00 Reistar verða 2.300 félagslegar leiguíbúðir á árunum 2016 til 2019, þó aldrei meiri en 600 á ári.
eygló harðardóttir Eygló Harðardóttir, ráðherra húsnæðismála, kynnti í gær umfangsmiklar aðgerðir í húsnæðismálum. Reisa á 2.300 félagslegar íbúðir á næstu fjórum árum og gjörbylta kerfi húsnæðisbóta. „Við erum að leggja grunninn að nýju félagslegu leiguíbúðakerfi,“ segir Eygló. Tillagnanna hefur verið beðið um nokkra hríð, en þær eru afrakstur samvinnu ríkisstjórnarinnar við Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins og fjölda verkalýðsfélaga. Þær eru kynntar sem aðgerðir til að leysa deilur á vinnumarkaði. Markmið tillagnanna er að fjölga hagkvæmum og ódýrum íbúðum til að tryggja tekjulágum fjölskyldum leiguhúsnæði til lengri tíma. Félagslega leigukerfið verður fjármagnað með stofnfjárframlögum ríkis og sveitarfélaga og með beinum vaxtaniðurgreiðslum sem nema um 30 prósentum af núvirtum stofnkostnaði. Slíkt framlag á að leiða til þess að leiga fólks með lágar tekjur verði ekki hærri en 20 til 25 prósent af tekjum, en í dag þekkjast dæmi um að hún nemi á bilinu 50 til 70 prósentum af tekjum þeirra launalægstu. Íbúðirnar 2.300 verða reistar á árunum 2016 til 2019, þó aldrei fleiri en 600 á ári. Fara á í endurskoðun lagaumhverfis, þar með talið byggingareglugerðar og skipulagslaga. Tekinn verður inn nýr flokkur mannvirkja sem mun auðvelda byggingu smærri og ódýrari íbúða. Þá verður gjaldtaka sveitarfélaga vegna lóða og gatnagerðar skoðuð til að lækka byggingarkostnað. Sérstakur stuðningur verður við efnaminni leigjendur á almennum leigumarkaði og húsnæðisbætur hækkaðar. Þá verður komið til móts við þá sem kaupa sína fyrstu íbúð með því að gera sparnað til íbúðakaupa skattfrjálsan. „Ég held að það sé óhætt að fullyrða það að við höfum ekki tekið jafn stór skref sem tengjast uppbyggingu félagslegs húsnæðiskerfis hér á Íslandi í um 50 ár. Þá var farið í mikið átak. Við erum að gera enn betur núna,“ segir Eygló.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira