Vilja tala við sameinaða verkalýðshreyfingu Óli Kristján Ármannsson skrifar 28. apríl 2015 07:00 Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri SA. Samtökin segja kröfur verkalýðsfélaga ósamstæðar og óbilgjarnar. Fréttablaðið/GVA
Í yfirstandandi kjarasamningum segjast Samtök atvinnulífsins (SA) hafa lýst vilja til þess að ræða sérstaklega hækkun lægstu launa til þess að þau dugi betur til lágmarksframfærslu. „Svo það sé mögulegt þarf að ná sátt um að sú hækkun verði ekki fyrirmynd að almennum launahækkunum,“ segir í pistli um stöðu viðræðnanna, sem birtur var á vef samtakanna í gær. „Svo unnt sé að ná slíkri sátt verður verkalýðshreyfingin að koma sameinuð að samningaborðinu en ekki sundruð líkt og nú.“ Í pistlinum er því lýst hvernig SA hafi lagt til að farnar yrðu „nýjar leiðir“ á vinnumarkaði, dagvinnulaun yrðu hækkuð sérstaklega umfram almennar samningsbundnar hækkanir um leið og álagsgreiðslur yrðu lækkaðar. „Uppstokkun launakerfa gæti orðið farvegur til að koma til móts við kröfur um betri framfærslumöguleika dagvinnulauna og styttri vinnutíma án þess að raska verðstöðugleika líkt og tíðkast í nágrannalöndum Íslands.“ Breytingar í þessa veru telja samtökin að yrðu „mjög jákvæðar“ fyrir bæði launafólk og atvinnulífið í heild sinni. „Þrátt fyrir þetta fjölgar kjaradeilum á borði ríkissáttasemjara og lýstu VR/LÍV og Flóabandalagið yfir árangursleysi viðræðna og hafa síðarnefndu félögin hafið undirbúning verkfalla,“ segir þar jafnframt og kröfur verkalýðsfélaga sagðar óbilgjarnar og líklegar til að leiða til efnahagsþrenginga.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira