Framkvæmdir æra íbúa við Bríetartún Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 28. apríl 2015 07:00 Bríetartún. Framkvæmdum lýkur í lok maí eða byrjun júní. Fréttablaðið/Valli „
Það er ekki verandi þarna inni,“ sagði Kristín E. Sigurðardóttir, íbúi við Bríetartún í Reykjavík. Umfangsmiklar framkvæmdir fara fram við götuna beint á móti íbúð Kristínar. Þar á tólf hæða íbúðaturn að rísa en undir turninum er gert ráð fyrir bílastæðakjallara. Jarðvegsframkvæmdir á lóðinni eru að gera Kristínu lífið leitt. „Frá klukkan átta til fimm eru þeir að bora með fleygnum og frá klukkan fimm til sjö eftirmiðdegis eru þeir að sprengja með tilheyrandi viðvörunarhljóðum,“ sagði Kristín sem fer reglulega til dóttur sinnar til að forðast hávaðann.Ætlar að þrauka Kristín segir varla verandi í íbúðinni sinni.Fréttablaðið/Valli„Ég reyni að koma mér út úr húsi fyrir átta áður en þetta hefst allt saman. Ég hef reynt að nota eyrnatappa, en ekkert virkar. Þetta reynir nokkuð á taugarnar,“ sagði Kristín sem er komin á níræðisaldur. „Það er ekki hægt að lesa eða hlusta á útvarpið fyrir þessu. Lætin eru eins og í Úkraínu eða Afganistan, öllum þessum stríðshrjáðu löndum. Ég er komin með höfuðkrampa yfir þessu,“ sagði hún.Kristín er í íbúð frá Félagsbústöðum en hún segir að þrátt fyrir ólætin hafi ekkert tjón orðið á íbúðinni. „Fleygvinna og sprengivinna er alltaf mjög hvimleið,“ sagði Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, sem fer með jarðvegsframkvæmdir við Bríetartún. „Þegar verið er að þétta byggðina svona mikið og reisa svona háhýsi eins og á sumum stöðum í Reykjavík verður að fara í svona framkvæmdir. Sprengivinna hefst oftast um fimmleytið á daginn og við reynum að halda öllu í góðum málum. En það er alltaf eitthvað um kvartanir,“ segir hann. „Það fylgir sögunni að gera þetta svona og það fer ekki fram hjá neinum. Við förum eftir öllum reglum og gerum sem flest til að minnka áhrifin af þessu,“ sagði Dofri en hann gerir ráð fyrir að jarðvegsframkvæmdum verði lokið í lok maí eða byrjun júní ef ekkert óvænt kemur upp á.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira