Óvissa með áframhald gangagerðar sveinn arnarsson skrifar 21. apríl 2015 09:00 Mikið hefur verið lagt í búnað Eyjafjarðarmegin til að lækka hitastig í göngunum. Nú er svo komið að gangagerðin hefur verið stöðvuð um óákveðinn tíma. fréttablaðið/Auðunn
Vaðlaheiðargöngin að austanverðu eru orðin full af vatni og þrýstast nú inn í göngin um það bil 500 lítrar af köldu vatni á sekúndu. Stafn ganganna, sem er um 1,5 km inni í fjallinu, liggur um fimmtán metra fyrir neðan gangamunnann og fylltust þau á um sólarhring. „Við áætlum að þarna inni séu um fjörutíu þúsund tonn af vatni,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. Jarðgangagerðin sjálf hefur því stöðvast um óákveðinn tíma á meðan fundin er lausn á vatnsflaumnum. Síðastliðinn föstudag sáu verkamenn hvar byrjað var að hrynja úr miðgengissprungu í lofti ganganna. Vatnssöfnunin var einnig mikil þrátt fyrir kröftugar dælur sem höfðu ekki undan. „Þegar verktaki sá að ekki tókst með góðu móti að koma vatninu út voru fengnar fleiri og öflugri dælur. Þær dælur höfðu hins vegar ekki undan magninu og því var það eina í stöðunni að ná verðmætum út úr göngunum og bíða átekta,“ segir Valgeir.Valgeir Bergmann„Það er alveg ljóst að það verður ekki grafið í nokkurn tíma. Við vitum ekkert hversu lengi gangagerðin stöðvast,“ segir Valgeir. „Nú erum við bara að skoða næstu skref og hvað við getum gert úr stöðunni. Við vitum að rennslið inn í göngin mun minnka. Hins vegar vitum við ekki hversu langan tíma það mun taka að ná jafnvægi. Nú vinnum við að því að finna út hversu öflugar dælur við þurfum til að dæla út vatninu. Einnig þurfum við öflugar lagnir því stafninn er 1.500 metra inni í fjallinu og við þurfum að ræsa vatn út alla þessa leið,“ segir Valgeir. Gangagerðin í Vaðlaheiði hefur ekki gengið greiðlega fyrir sig. Eftir nokkurn gröft Eyjafjarðarmegin lentu verktakar á mjög heitu vatni sem hefur stöðvað gangagerð þeim megin vegna hita. Nú eru göngin austanmegin orðin full af vatni og því verður enn meiri seinkun á verkinu. Valgeir segir kostnað við verkið þó ekki vera kominn langt fram úr áætlun sökum þessara erfiðleika. „Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir einhverjum ófyrirséðum kostnaði. Sá liður er ekki búinn en það stefnir auðvitað í að hann verði nokkuð hærri en spár gerðu ráð fyrir. Á móti kemur að verktakinn er aðeins með eitt borgengi í vinnu en átti að vera með tvö samkvæmt plani. Þótt verkið tefjist um einhvern tíma við þetta þarf það ekki að hafa í för með sér aukinn kostnað,“ segir Valgeir.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira