Upplýsingum um umgengnismál ábótavant segir þingmaður fanney birna jónsdóttir skrifar 18. apríl 2015 12:00 Guðmundur Steingrímsson
Sýslumannsembætti utan höfuðborgarsvæðisins hafa aðeins tvisvar úrskurðað um umgengni forræðislauss foreldris sjö daga af hverjum fjórtán síðan þeim var veitt heimild til þess. Heimildin var veitt þegar breytingar á barnalögum tóku gildi 1. janúar 2013. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Guðmundar Steingrímssonar, formanns Bjartrar framtíðar. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki og sýslumaðurinn á Höfn hafa í hvort skiptið úrskurðað um slíka umgengni en önnur sýslumannsembætti ekki. Á árunum 2013 og 2014 hafa þessi embætti úrskurðað í alls 33 málum. Í þessum málum hefur niðurstaðan verið umgengni við föður í 25 skipti en móður í fimm skipti. Guðmundur segir það vonbrigði að aðeins hafi verið úrskurðað tvisvar um jafna umgengni, viku og viku. „Það er ekkert minnst á mjög umfangsmiklar rannsóknir sem hafa verið gerðar á þessu á Íslandi sem sýna að jöfn umgengni kemur mjög vel út fyrir börn. Ég óttast að sýslumannsembættin og ráðuneytið séu ekki alveg nógu víðsýn þegar kemur að þessu,“ segir Guðmundur. Í svarinu er tekið fram að umgengnismálum hjá sýslumönnum getur lokið með öðrum hætti en með úrskurði, til að mynda með samkomulagi um umgengni, sem er algengast. Í svarinu kemur einnig fram að úrskurðir í umgengnismálum séu ekki birtir almenningi, heldur aðeins á sérstökum úrskurðavef sem eingöngu sýslumenn hafa aðgang að. Guðmundur gagnrýnir þetta fyrirkomulag. „Mér finnst þetta undarlegt. Alls konar úrskurðir í alls konar viðkvæmum persónulegum málum eru birtir, auðvitað undir nafnleynd og eiga ekki að vera persónurekjanlegir. Mér finnst ráðuneytið ekki svara nægilega fyrir það af hverju þetta er bara birt á lokuðum vef. Þetta eru viðkvæm mál en það er þess vegna mjög mikilvægt að þau séu meðhöndluð vel og gagnsæi er ein besta leiðin til að skapa hvata fyrir kerfið til að meðhöndla viðkvæm mál vel. Því er ábótavant þarna,“ segir Guðmundur.
Tengdar fréttir Umgengnisforeldrar aðallega feður 18. apríl 2015 00:01 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira