Minni útflutningur þrátt fyrir samning Óli Kristján Ármannsson skrifar 16. apríl 2015 07:00 Innflutningur frá Kína dróst örlítið saman í fyrra. Leiða má að því líkur að einhverjir hafi haldið að sér höndum í innkaupum í aðdraganda fríverslunarsamningsins sem tók gildi um mitt síðasta ár. Fréttablaðið/GVA
Þrátt fyrir gildistöku fríverslunarsamnings við Kína um mitt síðasta ár dróst útflutningur landsins þangað saman um tæpan þriðjung milli áranna 2013 og 2014. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands nam virði útflutnings til Kína 7.020 milljónum króna árið 2013, en var 4.803 milljónir í fyrra. Verðmætið dregst saman um 31,6 prósent milli ára. Þá dregst innflutningur frá Kína líka lítillega saman á milli ára, eða um 1,9 prósent, fer úr 43.024 milljónum 2013 í 42.193 milljónir 2014. Á vef Hagstofunnar er nýjasta vöruflokkagreining á útflutningi til Kína frá árinu 2012 þannig að ekki liggur fyrir hvaða útflutningur það er sem dregist hefur saman.Langlíklegast er þó að um sé að ræða sjávarfang af einhverju tagi en það er uppistaðan í vöruútflutningi til landsins. Í greiningu Hagstofu sést að 2012 voru sjávarafurðir 86 prósent útflutnings til Kína. Nýjustu tölur Hagstofunnar um inn- og útflutning frá Kína benda til þess að enn halli á Ísland í viðskiptum landanna. Þannig er halli á vöruskiptajöfnuði landanna rúmum 397 milljónum króna meiri fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Sé einungis horft til útflutnings er verðmæti hans í janúar og febrúar 1,61 prósenti minni en í fyrra, fer úr 697 milljónum króna í tæpar 686 milljónir. Á sama tíma eykst innflutningur frá Kína um 386 milljónir króna, fer úr rúmum 6.686 milljónum króna í rúmar 7.072 milljónir.Frosti ÓlafssonErfitt að meta reynsluna strax Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir erfitt að meta ávinning af fríverslunarsamningi Íslands við Kína þetta snemma. „Samningurinn tók gildi um mitt síðasta ár og því er reynslan af honum takmörkuð enn sem komið er.“ Fyrir fram segir Frosti að búast hefði mátt við að innflutningur myndi á fyrstu stigum aukast hraðar en útflutningur, enda taki lengri tíma fyrir íslensk fyrirtæki að skapa sér fótfestu á kínverskum mörkuðum en öfugt. Þetta megi einkum rekja til þeirrar staðreyndar að Íslendingar flytji mest inn af smásöluvörum frá Kína en meginuppistaðan í útflutningi okkar þangað séu sjávarafurðir. „Ég á þó von á því að til lengri tíma komi þessi samningur til með að efla viðskipti milli þessara landa,“ segir Frosti og bendir á að hér sé enda eftirspurn eftir framleiðsluvörum á hagstæðu verði, eins og merkja megi á mikilli aukningu netverslunar frá Kína. „Á sama tíma er ótvírætt sóknarfæri fyrir íslensk matvæli á þeim gríðarstóra markaði sem Kína er.“ Þá telur Frosti líklegt að viðskiptin fari vaxandi eftir því sem skilningur aukist á þeim tækifærum sem í samningnum felist. „Þar á ég til að mynda við hluti á borð við aukin aðfangakaup íslenskra framleiðenda frá Kína og mögulega sölu á sérhæfðri þjónustu frá Íslandi til Kína. Þekking á mörkuðum skiptir lykilmáli fyrir slíka þróun og líklega er hún fremur takmörkuð á báða bóga enn sem komið er.“
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Sjá meira