Skráning kirkjubóka eitt verkefna til að styrkja byggð sveinn arnarsson skrifar 13. apríl 2015 07:45 Norðvesturland býr nú þegar yfir hlutfallslega flestum opinberum störfum ef landsbyggðirnar eru skoðaðar. Lagt er til að 130 opinber störf hið minnsta komi til viðbótar inn í landshlutann. Fréttablaðið/Pjetur
Gert er ráð fyrir að átta stofnanir og verkefni verði flutt til Norðvesturlands samkvæmt tillögum nefndar á vegum forsætisráðherra. Einnig er gert ráð fyrir fjölda nýrra verkefna til að styrkja og efla byggð í landshlutanum. Lagt er til að í það minnsta 130 störf verði til í landshlutanum eða flytjist þangað á næstu misserum. Um aldamótin 2000 bjuggu 7.970 íbúar í landshlutanum. Þann 1. janúar síðastliðinn voru íbúarnir 7.137. Mest er fækkunin það sem af er öldinni á Skagaströnd eða rúmlega 20 prósenta fækkun. Í Skagafirði hefur fækkað um 6,6 prósent frá aldamótum. Lagt er til að RARIK verði flutt til Skagafjarðar, Minjastofnun á Sauðárkróki efld, að eigendahlutverk ríkisins í stofnfé Sparisjóða verði fært til Byggðastofnunar, Siglingasvið Vegagerðarinnar verði flutt til Skagafjarðar og að umferðareftirlit Samgöngustofu fari til lögreglunnar í landshlutanum. Einnig á ný þýðingarmiðstöð utanríkisráðuneytisins að verða til í landshlutanum og sex störf að flytjast innan Vinnumálastofnunar í landshlutann vegna aukinna verkefna greiðslustofu stofnunarinnar.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Skýrslan hefur verið í vinnslu forsætisráðuneytisins síðan um miðjan desember.Fréttablaðið/ErnirLangflest störfin sem munu flytjast frá öðrum landshlutum til landshlutans koma frá RARIK, eða um 50 talsins. Einnig er ráðgert í tillögum nefndarinnar að 18 störf siglingasviðs Vegagerðarinnar flytjist til Skagafjarðar og að fjögur störf Samgöngustofu verði lögð niður og færð til lögreglunnar í umdæminu. Nú hafa tillögur nefndarinnar verið til meðferðar hjá forsætisráðuneyti síðan um miðjan desember. Hvorki Þórólfur Árnason, forstöðumaður Samgöngustofu, né Hreinn Haraldsson, forstjóri Vegagerðarinnar, höfðu heyrt af hugmyndum nefndarinnar og þær höfðu ekki verið ræddar við þá. Þrettán verkefni eru einnig þess eðlis að um ný störf er að ræða sem kostuð eru af ríkinu. Þar kennir margra grasa. Til að mynda er tillaga um að þrjú ný störf verði til í þriggja ára verkefni um skráningu kirkjubóka í landshlutanum. Heildarkostnaður við það verkefni verði um 45 milljónir króna, eða 15 milljónir króna árlega. Nefndin leggur einnig til að 30 milljónum verði varið í frumkvöðlasetur í tengslum við einkahlutafélagið BioPol ehf. á Skagaströnd. Einkahlutafélagið er í eigu sveitarfélagsins Skagastrandar. Nefndin leggur til að hið opinbera leggi fé í tækjabúnað að upphæð 13 milljónir króna, breytingar á húsnæði einkahlutafélagsins sem metið er á 7 milljónir króna og að eitt stöðugildi verði til í Háskólanum á Akureyri að upphæð 10 milljónnir króna sem yrði þá staðsett á Skagaströnd. Í lok síðasta árs tók Byggðastofnun saman fjölda opinberra starfa eftir landshlutum. Í þeirri greiningu kemur fram að í landsbyggðunum sker Norðvesturland sig úr í fjölda opinberra starfa. Norðvesturland býr hlutfallslega yfir flestum opinberum störfum, ef horft er til fjölda íbúa.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Sjá meira