Teiknaði lógó fyrir 312 merkisdaga vina og fjölskyldu Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 10. mars 2015 08:30 Oscar Bjarnason. Vísir/GVA
Oscar Bjarnason, grafískur hönnuður, byrjaði alveg óvart að teikna lógó fyrir vini og vandamenn á merkisdögum fyrir fimm árum. „Þetta byrjaði þannig að félagi minn átti afmæli og ég teiknaði lógó fyrir hann í tilefni dagsins. Eftir það bættust alltaf fleiri og fleiri við og nú er þetta eiginlega komið út í vitleysu,“ segir Oscar og hlær.Bóndadagur.Oscar BjarnasonHann setur upp sýninguna Merkisdagar í Nýlistasafninu á miðvikudag. Þar verða til sýnis 312 lógóteikningar eftir Oscar. „Ég teiknaði aðallega fyrir fólk sem ég þekkti og reyndi að tengja lógóið við manneskjuna eða atburðinn. Ég teikna samt bara það fyrsta sem mér dettur í hug og tek helst ekki meira en tíu til fimmtán mínútur í að teikna hvert merki,“ segir hann. Þetta teiknaði Oscar þegar konan hans var ófrísk.Oscar BjarnasonLógóin vöktu mikla lukku og var hann einnig beðinn um að teikna fyrir fólk sem hann þekkti ekki. Oscar segir þetta fínustu heilaleikfimi að þurfa að hugsa svona hratt. „Þetta á að vera spontant. Stundum koma bara vondar hugmyndir sem ég teikna samt, svo kannski hálftíma síðar fæ ég miklu betri hugmynd en þá teikna ég hana bara að ári,“ segir Oscar. Í tilefni afmælis forstetans, Ólafs Ragnars.Oscar BjarnasonLógóin gaf hann í afmælisgjafir, en með tímanum fór hann að teikna aðra merkisdaga. „Ef eitthvað var í gangi eins og bjórdagur, bóndadagur eða afmæli forsetans teiknaði ég lógó fyrir þann dag,“ segir hann. Sýningin verður opnuð í Nýlistasafninu miðvikudaginn 11. mars klukkan 19.30.
Mest lesið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Fleiri fréttir Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Sjá meira