Ljúfi víkingurinn í Gladiatorerna Guðrún Ansnes skrifar 13. febrúar 2015 10:27 Upplifir drauminn í Svíþjóð þar sem hún leikur skylmingaþræl.
Björk Óðinsdóttir, sem slegið hefur í gegn í crossfit-heiminum hér á landi og víðar, slæst við keppendur í sænska fjölskylduþættinum Gladiatorerna. Hlutverk Bjarkar er að leika íslenskan víking sem heitir einmitt líka Björk. „Í þáttunum leik ég góðhjartaðan víking og virðist sem hún falli ágætlega í kramið hjá yngstu kynslóðinni,“ útskýrir hún. Gladiatorerna er rótgróinn skemmtiþáttur sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni TV4 á laugardagskvöldum. Hann er vinsæll meðal fjölskyldufólks. Allir geta skráð sig til þátttöku en vandlega er valið úr hverjir fá að mæta skylmingaþrælunum. Hlutverk Bjarkar í þáttunum er að gera þátttakendum erfitt fyrir að klára þrautir, sem lagðar eru fyrir þá, með ýmsum aðferðum. Óhætt er að fullyrða að hægara er sagt en gert að komast fram hjá skylmingaþrælunum en hópurinn samanstendur af þekktum kraftajötnum. Björk er atvinnumanneskja í crossfit og með Evrópumeistaratitil í hópfimleikum. „Það er virkilega gott fyrir mig að fá að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni, ekki skemmir heldur fyrir að karakterinn ber sama nafn og ég. Það festir mann betur í minninu.“ Björk er að verða stórt nafn í crossfit-senunni í Svíþjóð. Á milli þess sem hún hristir upp í Svíum í sjónvarpinu og æfir crossfit, þjálfar hún íþróttamenn í fimleikum úti um allan heim. „Ég er algjörlega að upplifa drauminn minn hérna,“ bætir hún við.
Mest lesið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Lífið samstarf „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Hilmir Snær stígur einn á svið Menning Fleiri fréttir GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Sjá meira