Ein kæra borist vegna Hagaskóla viktoría hermannsdóttir skrifar 24. janúar 2015 09:00 Ástand hefur verið í skólanum undanfarna mánuði vegna hótana og ógnana ákveðins hóps. vísir/Vilhelm "
Að sjálfsögðu gerum við það sem við getum til að tryggja öryggi nemenda í skólanum og teljum það hafa gengið prýðilega. Þegar svona stendur á þurfa önnur verkefni að víkja,“ segir Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Eins og Fréttablaðið sagði frá í vikunni hefur mikil hræðsla verið meðal barna í skólanum vegna hóps sem hefur ógnað og hótað nemendum þar um nokkurra mánaða skeið. Í byrjun vikunnar kom svo til ryskinga milli foreldris nemanda og annars nemanda sem hafði ógnað barni hans. Faðirinn mætti í skólann til þess að ræða við meintan geranda á skólatíma og endaði það með ryskingum þeirra á milli en ekki er vitað hversu alvarlegar þær voru.Ómar segist ekki geta tjáð sig um tiltekið atvik og segir það hafa farið í ákveðið ferli. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að ein kæra hafi borist tengd ástandinu í Hagaskóla. Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir það. Verið sé að vinna í málinu í samstarfi við skóla- og barnaverndaryfirvöld. "Það er unnið að því að leysa þessi mál og reynt að koma þeim til aðstoðar sem þess þurfa.“Mörg börn eru óttaslegin Ómar segir málin sem upp hafa komið ekki einskorðast við skólann sem slíkan, mörg atvikin sem um ræðir eigi sér stað utan skóla en snúi engu að síður að nemendum hans. Margir foreldrar hafa haft samband við skólann í vikunni og lýst yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins. "Við höfum fengið miklar upplýsingar og líka ábendingar um atvik sem eiga að hafa átt sér stað að undanförnu. Við viljum auðvitað geta fylgst með þeim börnum sem við vitum að eru óttaslegin og þurfa sérstakt eftirlit. Mörg börn eru hrædd og óttaslegin en það er samt þannig að flest börn hafa ekki lent í neinu,“ segir Ómar. "Það sem setti þetta mál á þann stað að okkur fannst við þurfa að upplýsa foreldra um stöðuna var að við fengum núna um áramótin upplýsingar um börn sem vildu síður taka þátt í tómstundastarfi í hverfinu. Þá af ótta við að lenda í aðstæðum eða hitta einhvern af þessum gerendum á förnum vegi, þar sem þeir hafa vanið komur sínar á staði þar sem þeir vita að eru börn fyrir,“ segir Ómar og tekur fram að unnið sé að því að leysa málið.
Tengdar fréttir Nemendum hefur verið hótað og ógnað Hópur ungmenna hefur gert nemendum við Hagaskóla lífið leitt með ógnunum og hótunum. Til ryskinga kom í gær milli foreldris og eins úr hópnum. Lögregla segir málið vera til rannsóknar og verið sé að leita lausna á vandanum. 21. janúar 2015 07:00 Dæmi um að loftbyssa hafi verið notuð í Hagaskóla Skólastjórinn segir ákveðið úrræðaleysi sé til staðar í málum sem þessum. 21. janúar 2015 18:58 Úrræði fyrir nemendur í vanda Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skóla- og frístundaráði lögðu fram tillögu á fundi ráðsins í gær um sérúrræði vegna vímuefnavanda grunnskólanemenda. 22. janúar 2015 07:00 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Sjá meira
Nemendum hefur verið hótað og ógnað Hópur ungmenna hefur gert nemendum við Hagaskóla lífið leitt með ógnunum og hótunum. Til ryskinga kom í gær milli foreldris og eins úr hópnum. Lögregla segir málið vera til rannsóknar og verið sé að leita lausna á vandanum. 21. janúar 2015 07:00
Dæmi um að loftbyssa hafi verið notuð í Hagaskóla Skólastjórinn segir ákveðið úrræðaleysi sé til staðar í málum sem þessum. 21. janúar 2015 18:58
Úrræði fyrir nemendur í vanda Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skóla- og frístundaráði lögðu fram tillögu á fundi ráðsins í gær um sérúrræði vegna vímuefnavanda grunnskólanemenda. 22. janúar 2015 07:00