Innlent

Segja stjórnvöld skerða réttindi sjóðfélaga

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs mun leggja fram breytingartillögu um að skerða réttindi sjóðsfélaga á ársfundi sjóðsins á morgun. Þetta er til komið vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að lækka örorkuframlag til gildis, eins og það kemur fram í ávarpi stjórnarformanns Gildis ­í ársskýrslu.

Í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum segir að örorkubyrði sé mismikil hjá lífeyrissjóðum þar sem að störf fólks séu ólík.

„Þannig er örorkubyrðin mun meiri hjá þeim sjóðum þar sem sjóðfélagar sinna störfum sem fela í sér aukna slysaáhættu og líkamsslit eins og raunin er hjá verkafólki og sjómönnum sem eru sjóðfélagar Gildis,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að niðurstöður kjarasamninga undanfarna áratugi hafi oftar en ekki falið í sér auknar tryggingar launa þegar starfsævi ljúki. Það hafi verið almenn sátt um að aukin áhætta vegna slysa og vinnuálags í vissum störfum væri ábyrgð samfélagsins.

Í lok ársins 2005 lýsti þáverandi ríkisstjórn yfir jöfnun á örorkubyrði og var það ein af forsendum kjarasamninga sem skrifað var undir það ár. Gildi segir að nú séu stjórnvöld að víkja sér undan þeirri ábyrgð.

„Það blasir því við að ríkið er með aðgerðum sínum að skerða sérstaklega lífsafkomu þess hóps samfélagsins sem sinnir erfiðisvinnu, verkafólks og sjómanna, umfram aðra hópa samfélagsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×