Framtak Kópavogsbæjar lofsamað 24. apríl 2015 07:45 Breytt fyrirkomulag við útreikninga á gjöldum og tilslökun hefur orðið til þess að fleiri fjölbýlishús eru nú í byggingu í Kópavogi. fréttablaðið/vilhelm
Samtök iðnaðarins hafa fagnað framtaki Kópavogsbæjar, en þar var reglum breytt í þeirri von að framkvæmdir myndu aukast. Haustið 2010 var tekin upp ný aðferð við útreikninga á lóðagjöldum þegar samþykkt var ákveðið lágmarksviðmiðunarverð. Áður var gjaldið reiknað sem 70 prósent af gatnagerðargjaldi, auk lóðaverðs, og síðan borgaði fólk ákveðið gjald á hvern fermetra umfram þessi 70 prósent. Afleiðingin var sú að byggingamagn á hverri lóð var í námunda við 70 prósentin. Breytingin skilaði því að fleiri par- og fjölbýlishús voru reist. Í upphafi þessa árs var ákveðið að setja á eitt gjald við úthlutun lóða, en áður miðaðist gjaldið við byggingarmagn á lóðinni og varð hærra því meira sem byggt var á lóðinni. Þá ákvað bæjarfélagið að endurskipuleggja hverfi þar sem lóðum hafði verið skilað inn, ekki síst vegna hrunsins, svo sem í Kórahverfinu. Ef framkvæmdir voru ekki hafnar við götur var skipulaginu breytt og lóðir minnkaðar. Guðmundur G. Gunnarsson, skrifstofustjóri umhverfissviðs hjá Kópavogsbæ, segir að þessar breytingar hafi orðið til þess að umsóknum um lóðir hafi fjölgað umtalsvert. Jón Bjarni Gunnarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir framtakið lofsvert og vill að fleiri sveitarfélög feti í fótspor Kópavogsbæjar. „Okkur finnst þetta lofsvert framtak hjá Kópavogsbæ. Þeir slökuðu aðeins niður verðinu og það sem gerir líka mögulegt að byggja þar ódýrar íbúðir er það að ákveðnar deiliskipulagskröfur eru minnkaðar, eins og með bílastæði í bílakjöllurum.“
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira