Táningur slapp ótrúlega vel frá bílslysi í Vesturbænum Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. janúar 2015 12:06 Jón slapp með minniháttar áverka Vísir/Sara
Betur fór en á horfðist þegar táningurinn Jón Eldar varð fyrir sendiferðabíl á Hringbraut í Reykjavík í byrjun ársins. Jón slapp með stóra kúlu, glóðarauga og eymsli í annarri öxlinni. Móðir hans, Sara Jónsdóttir, segir að mikilvægt sé að halda áfram að segja börnum að passa sig í umferðinni eftir að þau komast á unglingsaldurinn. „Hann var að koma úr strætó, gekk yfir Hringbrautina á leiðinni heim, klukkan átta um kvöld. Hann sá kyrrstæðan bíl á beygjuljósum og heldur þá að hann geti tekið sénsinn og labbað yfir Hringbrautina. Hann heldur að það sé ennþá rautt á beinu ljósunum en það reynist síðan ekki vera,“ segir Sara um aðdraganda slyssins.Frá slysstað.VísirÞegar út á götuna var komið áttar Jón sig á því að það sé grænt ljós á akreininni sem hann er að fara yfir. „Hann sér sendiferðabíl nálgast og reynir að spretta af stað en nær því ekki. Hann verður þá fyrir sendiferðabílnum,“ segir móðir hans. Hún lýsir því að Jón hafi tekist á loft og endað á umferðareyju á Hofsvallagötu. Fljótlega eftir slysið voru sjúkrabílar og lögregla komin á vettvang. Jón gat sagt konu sem varð vitni að slysinu hvar hann ætti heima og hljóp hún heim til hans til að gera Söru viðvart. „Við náum að hlaupa út á gatnamót. Þá eru tveir lögreglubílar og einn sjúkrabíll en sjúkrabíllinn með honum var farinn. Við vissum ekki ástandið á honum,“ segir hún. Leið hennar lá þá beint niður á bráðamóttöku þar sem sonur hennar hafði verið fluttur.Sjúkrabíllinn sem flutti Jón var farinn af stað þegar móðir hans kom að gatnamótunum.Vísir/Pjetur„Þegar við komum upp á bráðadeild, búin að keyra í miklu sjokki uppeftir, þá liggur hann á sjúkrabörum með kraga. Þá átti eftir að kanna allan líkama hans en hann var í svo miklu sjokki að hann titraði allur. Síðan kom á næstu mínútum í ljós að hann gat hreyft sig og hálsliðir voru í lagi,“ segir Sara. Sem betur fer slapp Jón með minniháttar áverka. „Hann fór bara mjög stuttu seinna aftur í skólann og það sér ekki á honum í dag. Þetta er var bara ótrúlegt og eins og þau upp á bráðadeild sögðu þá var þetta bara með ólíkindum,“ segir Sara aðspurð um líðan hans í dag. Hún segir að slysið hafi verið áminning á að muna að vara börn við hættunum sem leynast í umferðinni, jafnvel þó þau séu komin á unglingsaldurinn. „Þegar börnin manns eru orðin stór, orðnir unglingar, þá er maður löngu hættur að segja þeim að passa sig á bílunum en það er akkúrat þá sem þau fara að taka sénsana,“ segir hún.
Tengdar fréttir Ekið á gangandi vegfaranda í Vesturbænum Fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. 10. janúar 2015 22:09 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Sjá meira