Manndráp í Stelkshólum: Eiginmaðurinn ósakhæfur og skal sæta öryggisgæslu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. júní 2015 13:21 Maðurinn leiddur fyrir dómara þann 27. september síðastliðinn. Vísir/Stefán
Karlmaður um þrítugt hefur verið dæmdur til þess að sæta réttaröryggisgæslu. Maðurinn var ákærður af ríkissaksóknara fyrir manndráp á hendur eiginkonu sinni í íbúð þeirra í Stelkshólum í Reykjavík þann 27. september síðastliðinn. Var maðurinn talinn hafa banað henni með því að þrengja að öndunarvegi hennar. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn var sýknaður af refsikröfu þar sem hann er metinn ósakhæfur. Hann var dæmdur til að sæta öryggisgæslu sem var varakrafa ríkissaksóknara. Maðurinn hefur verið vistaður á réttargeðdeild Landspítalans undanfarna mánuði. Maðurinn hélt fram sakleysi sínu við yfirheyrslur hjá lögreglu í kjölfar handtökunnar. Sagði hann konuna hafa svipt sig lífi.Vísir/Egill AðalsteinssonÍ tilkynningu frá lögreglu í september kom fram að maðurinn hafði samband við annan aðila sem lét lögreglu vita skömmu eftir miðnætti umrædda nótt. Við komu lögreglu á vettvang vaknaði strax grunur um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum. Börn hjónanna, tveggja og fimm ára, voru á heimilinu nóttina sem konan lést. Í kjölfarið voru börnin í umsjá barnaverndaryfirvalda sem komu þeim í vistun hjá vinafólki hjónanna. Rannsókn málsins tók nokkuð langan tíma en fjóra mánuði tók að fá niðurstöður krufningar auk þess sem geðmat fór fram á manninum. Nágrannar mannsins voru slegnir þegar rætt var við þá í september. Hafði einn á orði að um virkilega vinalegt og gott fólk væri að ræða. „Þau voru síbrosandi og virkilega góð við hvort annað,“ sagði einn nágranninn í samtali við Vísi.
Tengdar fréttir Segir eiginkonu sína hafa svipt sig lífi Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í Stelkshólum á laugardag, heldur því fram að konan hafi tekið eigið líf. Hann hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu í skýrslutökum hjá lögreglu. 30. september 2014 07:00 Mannslát í Hafnarfirði: Hin grunaða neitaði sök Konan sem ákærð er fyrir að hafa banað sambýlismanni sínum á heimili þeirra við Skúlaskeið í Hafnafirði í febrúar neitaði í morgun sök við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness. 13. maí 2015 08:54 „Virkilega vinalegt og gott fólk“ Nágranni hjónanna í Stelkshólum í Breiðholti segir allt hafa verið með kyrrum kjörum á stigaganginum í gærkvöld. Hann talaði við hjónin síðdegis í gær og sagði ekkert benda til þess að harmleikur væri yfirvofandi. 28. september 2014 14:36 Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira
Segir eiginkonu sína hafa svipt sig lífi Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í Stelkshólum á laugardag, heldur því fram að konan hafi tekið eigið líf. Hann hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu í skýrslutökum hjá lögreglu. 30. september 2014 07:00
Mannslát í Hafnarfirði: Hin grunaða neitaði sök Konan sem ákærð er fyrir að hafa banað sambýlismanni sínum á heimili þeirra við Skúlaskeið í Hafnafirði í febrúar neitaði í morgun sök við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness. 13. maí 2015 08:54
„Virkilega vinalegt og gott fólk“ Nágranni hjónanna í Stelkshólum í Breiðholti segir allt hafa verið með kyrrum kjörum á stigaganginum í gærkvöld. Hann talaði við hjónin síðdegis í gær og sagði ekkert benda til þess að harmleikur væri yfirvofandi. 28. september 2014 14:36