Ákæru vegna brotlendingar TF-KEX vísað frá dómi Bjarki Ármannsson skrifar 17. mars 2015 20:45 TF-KEX brotlenti á skírdag 2010 með þrjá farþega innanborðs. MYND/ÚR SKÝRSLU RANNSÓKNARNEFNDAR FLUGSLYSA
Ákæru ríkissaksóknara gegn flugmanni Cessna-flugvélarinnar TF-KEX, sem brotlenti á skírdag árið 2010, hefur verið vísað frá Hæstarétti. Flugmaðurinn var ákærður fyrir almannahættubrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og brot gegn loftferðalögum. Héraðsdómur Suðurlands vísaði málinu frá þann 20. febrúar síðastliðinn vegna „bersýnilegra annmarka“ á rannsókn lögreglu á slysinu. Hæstiréttur vísaði áfrýjun ríkissaksóknara hins vegar frá vegna tæknilegra atriða.Óheimilt að beita skýrslu rannsóknarnefndar sem sönnunargagni Þrír farþegar voru um borð í TF-KEX er hún brotlenti í hlíðum Langholtsfjalls í Árnessýslu, skammt frá Flúðum, þann 1. apríl 2010. Þar er sumarbústaðabyggð og sögðu sjónarvottar að flugvélin hefði flogið lágt yfir svæðinu. Allir farþegarnir þrír slösuðust talsvert. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa, sem kom út árið 2013, segir að flugmaðurinn hafi flogið vélinni lítið hlaðinni yfir sumarbústaðabyggðinni án þess að hafa framkvæmt massa- eða jafnvægisútreikninga.Sjá einnig: Þriðja slysið í lágflugi á fjórum árum Í frávísunarkröfu flugmannsins ákærða segir að saksókn lögreglu hafi fyrst og fremst byggt á skýrslu nefndarinnar, en ekki sjálfstæðri rannsókn lögreglu. Lög um rannsókn samgönguslysa kveði hins vegar á um að rannsókn skuli eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir slíkra slysa en ekki reyna að skipta sök eða ábyrgð. Skýrslum nefndarinnar skuli jafnframt ekki beitt sem sönnunargögnum í sakamálum.Röksemdir í kæru úrskurðar ófullnægjandi Ákæruvaldið hafnaði því fyrir dómi að ákæran væri alfarið byggð á niðurstöðu skýrslunnar. Vissulega hafi verið vísað til tæknilegra atriða í ákærunni en aðrar fullyrðingar séu byggðar á því sem kom fram í framburði vitna við lögreglurannsókn. Meðal annars það að vélinni hafi verið flogið í lítilli hæð í sterkum, hviðóttum vindi. Héraðsdómur féllst hinsvegar á frávísunarkröfu flugmannsins og þau rök að lýsing á ætlaðri refsiverðri háttsemi í ákæru byggi í öllum meginatriðum á skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Ríkissaksóknari áfrýjaði til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá í gær. Í úrskurði Hæstaréttar segir að það hafi verið ófullnægjandi að í kæru ríkissaksóknara væri einungis vísað til þeirra sjónarmiða sem komu fram fyrir héraðsdómi. Greinargerð með frekari röksemdum var skilað inn til Hæstaréttar en dómurinn taldi það ekki bæta úr annmörkum á kærunni. Ríkissjóður greiðir málskostnað og þóknun lögmanns hins ákærða.
Tengdar fréttir Flugmaður neitar sök vegna brotlendingar við sumarhús Marteinn Einarsson, sem ákærður er vegna brotlendingar flugvélar nærri Flúðum í apríl 2010, neitaði sök við þingfestingu málsins hjá Héraðsdómi Suðurlands. Farþegi sem slasaðist krefst einnar millljónar í miskabætur. 22. desember 2014 07:00 Flugmaður TF-KEX ákærður fyrir að hafa ekki gætt nægrar aðgæslu Vélin brotlenti á skírdag 2010 með þrjá farþega innanborðs. Farþegi sem hryggbrotnaði krefst miskabóta. 10. desember 2014 07:00 Of þungri vél brotlent við sumarhús Flugvél sem hrapaði í flugi yfir sumarhúsabyggð var ofhlaðin og í of lítilli hæð til að ná krappri beygju sem flugmaðurinn reyndi að taka. Annar flugmaður, sem var farþegi í vélinni og slasaðist illa, var ósáttur við aðfarir hins en sagði þó ekkert. 8. nóvember 2013 07:00 Þriðja slysið í lágflugi á fjórum árum Flugslysið við Hlíðarfjall á Akureyri í fyrra sem Vísir hefur fjallað um í dag er það þriðja á rúmum fjórum árum þar sem flugvél var í lágflugi. 6. janúar 2014 17:00 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira
Flugmaður neitar sök vegna brotlendingar við sumarhús Marteinn Einarsson, sem ákærður er vegna brotlendingar flugvélar nærri Flúðum í apríl 2010, neitaði sök við þingfestingu málsins hjá Héraðsdómi Suðurlands. Farþegi sem slasaðist krefst einnar millljónar í miskabætur. 22. desember 2014 07:00
Flugmaður TF-KEX ákærður fyrir að hafa ekki gætt nægrar aðgæslu Vélin brotlenti á skírdag 2010 með þrjá farþega innanborðs. Farþegi sem hryggbrotnaði krefst miskabóta. 10. desember 2014 07:00
Of þungri vél brotlent við sumarhús Flugvél sem hrapaði í flugi yfir sumarhúsabyggð var ofhlaðin og í of lítilli hæð til að ná krappri beygju sem flugmaðurinn reyndi að taka. Annar flugmaður, sem var farþegi í vélinni og slasaðist illa, var ósáttur við aðfarir hins en sagði þó ekkert. 8. nóvember 2013 07:00
Þriðja slysið í lágflugi á fjórum árum Flugslysið við Hlíðarfjall á Akureyri í fyrra sem Vísir hefur fjallað um í dag er það þriðja á rúmum fjórum árum þar sem flugvél var í lágflugi. 6. janúar 2014 17:00