„Ég veit ekkert hvað hann sýndi mörgum þessa mynd“ Birgir Olgeirsson skrifar 1. apríl 2015 14:02 Gulli Bergmann. Vísir/Facebook. „
Ég fékk loksins að vita það; strákur sem ég þekkti hafði komið með nektarmynd af mér og var að sýna hana um allan skóla,“ skrifar Gulli Bergmann á Facebook í dag þar sem hann lýsir þeirri reynslu þegar nektarmynd af honum var í dreifingu í Valhúsaskóla á tíunda áratug síðustu aldar þegar hann var þrettán ára gamall. Þegar Gulli mætti í skólann þann dag varð hann var við að hvert sem hann fór var hlegið að honum. Þegar hann fékk loksins að vita hver ástæðan var fann hann fyrir undarlegum sting í hjartað og vöktu svipbrigði hans kátínu hjá nemendum sem hlógu þeim mun meira. Gulli hafði upp á drengnum sem hafði sýnt nemendum Valhúsaskóla myndina og bað um að fá að sjá hana. Drengurinn neitaði Gulla um það en eftir að hafa lofað að skemma ekki myndina leyfði drengurinn Gulla loksins að sjá hana.Hótaði að framkalla ótal eintök af myndinni „Hann sannfærðist loksins á að leyfa mér að sjá hana, með því skilyrði að ef ég myndi skemma hana á nokkurn hátt þá myndi hann láta framkalla ótal eintök af myndinni og dreifa út um allt. Þetta var þrjóskur og framtakssamur strákur og ég vissi að hann myndi standa við orð sín. Skjálfandi tók ég við myndinni. Þarna starði ég framan í sjálfan mig. Á myndinni var ég kviknakinn, með eitthvað asnalegt sigurbros á andlitinu og böllinn í höndinni eins hann væri einhver verðlaunagripur. Þessi mynd hafði verið tekin í einhverjum fíflalátunum og þá með yfirskriftinni að það var “engin filma” í myndavélinni,“ skrifar Gulli sem rétti drengnum myndina aftur og við tóku margir dagar þar sem hann mætti ekki skóla.Skammaðist sín lengi Í samtali við Vísi um málið segist Gulli ekki hafa deilt þessari sögu með öðrum áður. „Ég hef aldrei fundið tilefni til þess fyrr eða séð ástæðu,“ segir Gulli sem deilir þessari sögu til að benda á að #freethenipple-átakið hefur haft jákvæð áhrif fyrir það fólk sem hefur staðið í sömu sporum og hann og séð enga leið úr þeim eitt síns liðs. „Ég skammaðist mín fyrir þetta svo lengi og var í mörg ár hræddur um að myndin myndi dúkka upp eftir þetta og fólk myndi fara að setja í samhengi við hvar hún hefði verið tekin og af hverju. Svo þegar ég komst yfir það þá skipti það mig engu máli. Þá var það bara eitthvað sem hafði gerst,“ segir Gulli sem lýsir því á Facebook að hann og drengurinn sem deildi myndinni hefðu síðar orðið ágætis félagar. „Við vorum ekkert mikið að hanga saman en höfðum gert það þegar við vorum yngri. Svo hættum við í raun aldrei að vera vinir. Þá snerti þetta mig ekki lengur,“ segir Gulli sem segir þá ekki hafa rætt þetta atvik eftir að það átti sér stað.Færsluna má lesa í heild hér fyrir neðan:Í tilefni af umræðunni undanfarið þá langar mig að deila með ykkur þegar nektarmynd af mér var dreift um allan skólann....Posted by Gulli Bergmann on Wednesday, April 1, 2015
Tengdar fréttir AFS: „Hér starfa femínistar og þetta eru bara vangaveltur“ Framkvæmdastjóri AFS segir af og frá að Öddu Þóreyjardóttur Smáradóttur hafi verið synjað um skiptinám í Kosta Ríka vegna #freethenipple. 31. mars 2015 14:20 Gerðu myndband um #Freethenipple fyrir útlendinga Play Iceland, ný íslensk myndbandasíða á ensku, leit dagsins ljós í dag. 31. mars 2015 21:40 Geirvörtusundið í Laugardal: Um þúsund manns mættu í Laugardalslaugina Starfsmenn Laugardalslaugar áætla að frá klukkan 20 hafi laugargestir talið um þúsund. Skipuleggjendur viðburðarins eru himinlifandi með hvernig til tókst. 29. mars 2015 22:58 Nippurnar í prófæl: „Ætla sjálf aðeins að sýna geirvörtuna en ekki brjóstin“ Bylgja Babýlóns hvetur fólk til að setja geirvörtur sínar sem forsíðumynd á Facebook. 31. mars 2015 17:00 Ósammála flokkssystur sinni: Yngsta þingkonan vill ekki að brjóst séu falin Hanna María Sigmundsdóttir leggur sitt lóð á vogaskálarnar í #FreeTheNipple 26. mars 2015 10:33 Beraði brjóstin á b5: Biggi lögga gekk „vandræðalegur“ í burtu „Ég setti reyndar ekki mynd af mér á netið, þorði því ekki, en studdi átakið heilshugar. Ég held ég hafi sýnt það í verki,“ segir Jónína Birgisdóttir. 30. mars 2015 10:00 Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Fleiri fréttir Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Sjá meira
AFS: „Hér starfa femínistar og þetta eru bara vangaveltur“ Framkvæmdastjóri AFS segir af og frá að Öddu Þóreyjardóttur Smáradóttur hafi verið synjað um skiptinám í Kosta Ríka vegna #freethenipple. 31. mars 2015 14:20
Gerðu myndband um #Freethenipple fyrir útlendinga Play Iceland, ný íslensk myndbandasíða á ensku, leit dagsins ljós í dag. 31. mars 2015 21:40
Geirvörtusundið í Laugardal: Um þúsund manns mættu í Laugardalslaugina Starfsmenn Laugardalslaugar áætla að frá klukkan 20 hafi laugargestir talið um þúsund. Skipuleggjendur viðburðarins eru himinlifandi með hvernig til tókst. 29. mars 2015 22:58
Nippurnar í prófæl: „Ætla sjálf aðeins að sýna geirvörtuna en ekki brjóstin“ Bylgja Babýlóns hvetur fólk til að setja geirvörtur sínar sem forsíðumynd á Facebook. 31. mars 2015 17:00
Ósammála flokkssystur sinni: Yngsta þingkonan vill ekki að brjóst séu falin Hanna María Sigmundsdóttir leggur sitt lóð á vogaskálarnar í #FreeTheNipple 26. mars 2015 10:33
Beraði brjóstin á b5: Biggi lögga gekk „vandræðalegur“ í burtu „Ég setti reyndar ekki mynd af mér á netið, þorði því ekki, en studdi átakið heilshugar. Ég held ég hafi sýnt það í verki,“ segir Jónína Birgisdóttir. 30. mars 2015 10:00