Slasaður ferðalangur á Vestfjörðum: „Hefði getað haldið áfram á feti“ Jóhann Óli Eiðsson skrifar 14. júlí 2015 17:00 Rauða merkið sýnir um það bil hvar tófan hljóp upp og fældi hrossið. loftmynd/map.is „
Ég hef það bæði skítt og gott svona miðað við allt. Ég er nokkuð ókvalinn og get haltrað um svona innan skekkjumarka,“ segir Þórður Halldórsson. Þórður slasaðist í gær í reiðtúr skammt frá Skipeyri í Hrafnfirði á Hornströndum. Þórður var á ferð í tíu manna hópi en reiðtúrinn sem hann var í tekur alls níu daga séu komu og brottfarardagur tekinn með í dæmið. Riðið er í kringum Drangjökul, gist í tjöldum og gengið á fjöll sem verða á vegi ferðalanga. „Við vorum að ríða þarna inn og það varð tófa á vegi okkar. Í upphafi virðist hún hafa ætlað að liggja okkur af sér en síðan guggnaði hún á því og spratt upp. Hrossinu brá við það og stökk til hliðar.“Björgunarbáturinn Gísli Hjalta, hér til hægri, fór til aðstoðar manninum.vísirHefði getað ráðið við fetið Vikuna fyrir ferðina hafði Þórður tognað í hægri fæti og var því ekki alveg hundrað prósent í ferðinni. „Ég kreppti fótinn ósjálfrátt, það kom högg á vöðvann en ég beit það í mig að halda áfram. Þegar við komum upp á Skorarheiðina þurfti að járna hross og ég var hálfþróttlaus og þurfti að hvíla mig á milli hóffjaðra.“ Þórður er vanur hestaferðunum en í rúma tvo áratugi hefur hann riðið þessa leið með fólki sem vill fara hana. Ferðirnar eru farnar tvisvar til þrisvar sinnum á hverju sumri. Hann segir að með í för hafi verið manneskja sem hafi bent honum á að ekkert vit væri í því að halda áfram. Lærvöðvinn væri nokkuð stór og gæti rúmað heilmikið af blóði. „Ég hefði ábyggilega getað haldið áfram á rólegu feti en við vorum að komast á stað þar sem hrossin hefðu tekið sprettinn. Við hrossið áttum einfaldlega ekki samleið lengur og því var afráðið að koma mér undir læknishendur.“ Í upphafi stóð til að þyrla Landhelgisgæslunnar myndi sækja Þórð en sökum þoku var hætt við það. Þess í stað kom gönguhópur og sótti hann en þeir komu á staðinn með björgunarskipunum Gísla Hjalta og Helga Páls. „Við komum á Ísafjörð um þrjúleitið í nótt. Þetta er sennilega slitinn vöðvi aftan á lærinu eða í það minnsta trosnaður. Sem stendur ræð ég við að ganga en á erfitt með óvæntar, snöggar hreyfingar. Fólkinu sem hafði fyrir því að ná í mig og koma mér til byggða vil ég þakka sérstaklega fyrir björgunina,“ segir Þórður að lokum.
Tengdar fréttir Tuttugu björgunarmenn bera slasaðan göngumann niður Það tekur björgunarmenn tæpan klukkutíma að labba upp að Skorarvatni á norðanverðum Vestfjörðum en þar er slasaður göngumaður í 220 metra hæð. 13. júlí 2015 22:46 Sækja slasaðan mann við Skorarvatn Björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld. 13. júlí 2015 21:10 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Tuttugu björgunarmenn bera slasaðan göngumann niður Það tekur björgunarmenn tæpan klukkutíma að labba upp að Skorarvatni á norðanverðum Vestfjörðum en þar er slasaður göngumaður í 220 metra hæð. 13. júlí 2015 22:46
Sækja slasaðan mann við Skorarvatn Björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld. 13. júlí 2015 21:10