Bregðast þurfi við auðveldu aðgengi að lyfseðlum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 28. maí 2015 23:00 Íslendingar eiga þann vafasama heiður að eiga Norðurlandametið í notkun svefnlyfja. vísir/getty
Vísbendingar eru um að meðferðartími á notkun svefnlyfja Íslendinga hafi lengst og skammtar lyfjanna stækkað. Það gæti skýrst af niðurskurði og auknu álagi í heilbrigðiskerfinu sem gæti hafa orðið þess valdandi að læknar hafi minni tíma til að fylgja sjúklingum sínum eftir og skrifi jafnvel upp á fjölnota lyfseðla. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Ásu Guðrúnar Guðmundsdóttur, MS-nema í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Ása Guðrún gaf Vísi góðfúslegt leyfi til að birta niðurstöður úr verkefni sínu, sem ber heitið „Umframnotkun róandi- og svefnlyfja á Íslandi á árunum 2003-2013. Þar kemur fram að umframnotkun hafi aukist á tímabilinu, en með umframnotkun er átt við það sem tekið er af lyfi umfram það sem ráðlagt er. Ása segir að ýmsar mögulegar skýringar kunni að liggja að baki þessari hækkun.Sjá einnig: Um 400 íslensk börn nota svefnlyf við aukaverkunum ofvirknilyfjaHætta á misnotkun „Til að mynda kemur upp í hugann niðurskurður og álag í heilbrigðiskerfinu. Þetta getur leitt til þess að læknar hafi minni tíma til að fylgja sjúklingum eftir og skrifi jafnvel upp á fjölnota lyfseðla,“ sagði Ása er hún varði verkefni sitt fyrr í þessum mánuði. Hún segir að þegar svefnlyfjameðferð sé orðin löng, og/eða skammtar eru stærri en ráðlagt er, geti það bent til rangrar meðferðar.Sjá einnig: Ódýrara að kaupa fleiri töflur en færri „Undirliggjandi sjúkdómur getur leitt til svefnleysis og mikilvægt er að hann sé meðhöndlaður. Svefn- og róandi lyf eru ávanabindandi og þar af leiðandi er ákveðin hætta á misnotkun,“ segir hún og bætir við að hún telji auðveldan aðgang að endurnýjun lyfseðla geta haft mikil áhrif. Það sé alvarlegt vandamál í heilbrigðiskerfinu sem þurfi að bregðast við.Norðurlandamet í notkun svefnlyfja Íslendingar eiga þann vafasama heiður að eiga Norðurlandametið í notkun svefnlyfja. Hér á landi er svefnlyfjanotkun tvisvar til þrisvar sinnum meiri en annars staðar á Norðurlöndum en læknar og starfsmenn Landlæknisembættisins hafa lýst yfir áhyggjum vegna þessa. Nú vinnur þverfaglegt teymi við Háskóla Íslands að því að kortleggja svefnvenjur Íslendinga, og munu meðal annars athuga áhrif misræmis sólar og staðartíma á svefnvenjur Íslendinga.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira