Borgarfulltrúi stígur fram: „Mér hefur verið nauðgað og ég hef átt við áfallastreituröskun að stríða“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. júlí 2015 10:24 Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, stígur nú fram og greinir frá kynferðisofbeldi. „
Ég er ekki mikið fyrir að opna mig en ég ætla núna að stíga langt út fyrir þægindarammann og þakka því fólki sem hefur hjálpað mér og öðrum með hugrekki sínu og aflétt þeirri þöggun sem hefur hvíld yfir kynferðisofbeldi og afleiðingum þess.“ Á þessum orðum hefst Facebook-færsla Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, en þar greinir hún frá því að henni hafi verið nauðgað. Vegna þess hafi hún glímt við áfallastreituröskun. Guðfinna segist ekki þekkja manninn sem nauðgaði henni en að hann hafi búið í húsinu við hliðina á vinkonum hennar þegar hún var barn. „Það er erfitt að stíga fram og segja frá einhverju sem maður hefur falið svo lengi en það er líka erfitt að halda því leyndu. Ég viðurkenni það fúslega að það að viðurkenna að hafa verið nauðgað og setja þessa færslu hér er eitt það erfiðasta sem ég hef gert en samt ekki jafn erfitt og að hafa lifað með afleiðingum þess í áratugi.“ Guðfinna segir áfallastreituröskun hafa mikil áhrif á daglegt líf þeirra sem þjást af henni og hún segir nauðsynlegt að opna umræðuna um hana: „Kvíðinn, reiðin, óttinn, skömmin, martraðirnar, endurupplifunin, þráhyggjan, feluleikurinn við að brynja sig svo enginn viti hvað maður hefur gengið í gegnum, dagarnir sem maður hefur þurft að tala sjálfan sig í gegnum daginn til að komast af, félagsfælnin, vonleysið, vörnin, myrkfælnin og allt hitt sem fylgir er erfitt að lifa með og getur bitnað á mörgum enda fylgir slíkri vanlíðan oft hegðun sem enginn skilur en er í raun öskur á hjálp. Því er mikilvægt að opna umræðuna um afleiðingar kynferðisofbeldis og aðstoða þá sem hafa lent í kynferðisofbeldi.“Ég er ekki mikið fyrir að opna mig en ég ætla núna að stíga langt út fyrir þægindarammann og þakka því fólki sem hefur...Posted by Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir on Friday, 24 July 2015 Mikill fjöldi kvenna hefur stigið fram síðustu mánuði og greint frá kynferðisofbeldi, bæði í Beuty Tips-byltingunni svokölluðu og svo núna þegar nær hefur dregið Druslugöngunni sem fram fer á morgun. Gangan hefst klukkan 14 og verður gengið frá Hallgrímskirkju og niður á Austurvöll. Þar verða ræðuhöld og tónleikar þar sem meðal annars Friðrik Dór og Úlfur Úlfur munu koma fram.
Tengdar fréttir Deila reynslu af nauðgunum og misnotkun: „Ég var bara sex ára“ Mikil umræða á sér stað núna inn á Facebook hópnum Beauty Tips. 29. maí 2015 13:49 „Fjórum mánuðum áður en þessi mynd var tekin var mér nauðgað“ Sunna Ben, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar, hvetur þolendur kynferðisofbeldis til að kæra. Lögreglan réð henni frá því á sínum tíma og sér hún mikið eftir því í dag að hafa ekki kært. 21. júlí 2015 11:21 Skipuleggjanda Druslugöngunnar var hópnauðgað: „Það skiptir miklu máli að segja frá“ Eva Brá Önnudóttir hefur glímt við áfallastreituröskun í kjölfar kynferðisofbeldis. Hún segir mikilvægt að ræða um röskunina, sem sé erfið fyrir bæði þolendur og aðstandendur. 23. júlí 2015 21:30 Segir kynferðisofbeldi af hálfu fyrrum kærasta afleiðingu klámvæðingarinnar Lilja Karen er ein þeirra sem sagt hefur frá kynferðisofbeldi inn á Facebook-hópnum Beauty Tips. Hún segir fyrrverandi kærasta hafa beitt sig kynferðislegu og andlegu ofbeldi þegar hún var 14 ára gömul og brotin hafi verið afleiðing klámvæðingarinnar þar sem hann hafi verið heltekinn af klámi og sótt hugmyndir sínar um kynlíf þaðan. 1. júní 2015 19:13 Annasamt hjá Stígamótum í kjölfar Beauty Tips byltingarinnar "Við sjáum alveg beina tengingu við þessa miklu umræðu," segir ráðgjafi hjá Stígamótum. 6. júní 2015 19:06 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira
Deila reynslu af nauðgunum og misnotkun: „Ég var bara sex ára“ Mikil umræða á sér stað núna inn á Facebook hópnum Beauty Tips. 29. maí 2015 13:49
„Fjórum mánuðum áður en þessi mynd var tekin var mér nauðgað“ Sunna Ben, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar, hvetur þolendur kynferðisofbeldis til að kæra. Lögreglan réð henni frá því á sínum tíma og sér hún mikið eftir því í dag að hafa ekki kært. 21. júlí 2015 11:21
Skipuleggjanda Druslugöngunnar var hópnauðgað: „Það skiptir miklu máli að segja frá“ Eva Brá Önnudóttir hefur glímt við áfallastreituröskun í kjölfar kynferðisofbeldis. Hún segir mikilvægt að ræða um röskunina, sem sé erfið fyrir bæði þolendur og aðstandendur. 23. júlí 2015 21:30
Segir kynferðisofbeldi af hálfu fyrrum kærasta afleiðingu klámvæðingarinnar Lilja Karen er ein þeirra sem sagt hefur frá kynferðisofbeldi inn á Facebook-hópnum Beauty Tips. Hún segir fyrrverandi kærasta hafa beitt sig kynferðislegu og andlegu ofbeldi þegar hún var 14 ára gömul og brotin hafi verið afleiðing klámvæðingarinnar þar sem hann hafi verið heltekinn af klámi og sótt hugmyndir sínar um kynlíf þaðan. 1. júní 2015 19:13
Annasamt hjá Stígamótum í kjölfar Beauty Tips byltingarinnar "Við sjáum alveg beina tengingu við þessa miklu umræðu," segir ráðgjafi hjá Stígamótum. 6. júní 2015 19:06