Stúdentaráð tekur undir orð menntamálaráðherra Jóhann Óli Eiðsson skrifar 15. júlí 2015 11:18 Háskóli Íslands vísir/ernir
Stúdentaráð Háskóla Íslands tekur heilshugar undir ummæli Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, frá í gær um að þörf sé á að endurskoða útlánakerfi Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Leggur ráðið til að litið verði til fyrirkomulagsins sem þekkist á öðrum Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SHÍ. „Það er styrkjakerfi fólgið í íslenska námslánakerfinu en það er engin alvöru stefnumótun á bak við hvernig þeim styrkjum er úthlutað eða til hverra þeir renna,“ sagði Illugi í samtali við Fréttablaðið í gær.Í árskýrslu LÍN fyrir árin 2013-2014 kemur fram að þeir einstaklingar sem skuldi LÍN 2,5 milljónir eða minna greiða 85% af láni sínu til baka. Hins vegar greiða þeir aðeins um fjórðung sem skulda LÍN fimmtán milljónir eða meira. Vill SHÍ meina að í þessu kerfi felist styrkur en árið 2014 námu afskriftir LÍN um 7,6 milljöðrum króna. Í tilkynningu SHÍ segir meðal annars að „með því að endurskoða útlánakerfið að norrænni fyrirmynd væri hægt að hafa styrkina í boði fyrir alla og gæta jafnræðis. Stúdentaráð telur að hægt sé að nýta útlánakerfi að norrænni fyrirmynd til að styðja nemendur að klára á „réttum“ tíma. Þannig kerfi er notað í Noregi þar sem lánum nemenda er að hluta breytt í styrk útskrifist þeir innan tímaramma. Það hefur aukin þjóðhagslegan ábata þar sem það kostar menntakerfið að hafa nemendur sem taka sér langan tíma við að brautskrást.“ Telur Stúdentaráð að með því að fara að þessari norrænu fyrirmynd væri hægt að breyta framfærsluláninu í styrk og þar með jafna hlut námsmanna óháð því hversu há lán þeir taka.
Tengdar fréttir Illugi vill endurskoða lánakerfi LÍN Menntamálaráðherra segir brýnt að brugðist verði við auknum vanskilum. 14. júlí 2015 07:00 Tuttugu einstaklingar skulda LÍN samtals 663 milljónir Árskýrsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2013-14 er komin út. 13. júlí 2015 13:22 Fjörutíu manns skulda LÍN 1,1 milljarð Framkvæmdastjóri LÍN kallar eftir umræðu um að þeir sem fá hæstu lánin greiði hlutfallslega minnst. 14. júlí 2015 11:00 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Illugi vill endurskoða lánakerfi LÍN Menntamálaráðherra segir brýnt að brugðist verði við auknum vanskilum. 14. júlí 2015 07:00
Tuttugu einstaklingar skulda LÍN samtals 663 milljónir Árskýrsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2013-14 er komin út. 13. júlí 2015 13:22
Fjörutíu manns skulda LÍN 1,1 milljarð Framkvæmdastjóri LÍN kallar eftir umræðu um að þeir sem fá hæstu lánin greiði hlutfallslega minnst. 14. júlí 2015 11:00