Breyta hringtorgi í Kópavogi eftir að ekið var á barn Birgir Olgeirsson skrifar 15. júlí 2015 11:08 Starfsmenn Kópavogsbæjar brugðust strax við gagnrýni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna hringtorgs á Fífuhvammsvegi. Vísir/Andri „
Varðandi þetta tiltekna hringtorg hefur þegar verið brugðist við og verða gerðar þær úrbætur sem við teljum að séu nauðsynlegar í þessu tilfelli,“ segir Eiður Guðmundsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar, um hringtorg á Fífuhvammsvegi við Salaveg í Kópavogi sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gagnrýndi á Facebook-síðu sinni fyrir helgi. Gagnrýnin kom í kjölfar umferðarslyss sem átti sér stað á hringtorginu föstudaginn 3. Júlí þegar ekið var á sjö ára stúlku á reiðhjóli. Gagnrýndi lögreglan uppsetningu gangbrautar við hringtorgið og sagði hönnunina byrgja sýn ökumanna. Um dæmigert slys við hringtorg hefði verið að ræða þar sem ökumaðurinn sá ekki barnið fyrr en það var um seinan.Sjá einnig: Lögreglan gagnrýnir uppsetningu gangbrautar við hringtorg eftir að ekið var á stúlkuSvona leit hringtorgið út fyrir breytingarnar.Vísir/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinuEiður segir starfsmenn Kópavogsbæjar hafa fjarlægt gróður af hringtorginu til að auka útsýni ökumanna. „Það var strax brugðist við í sjálfu sér. Síðan verður skoðað hvort þurfi að gera eitthvað meira, meðal annars varðandi staðsetningu gangbrautar og annað,“ segir Eiður sem á von á því að önnur hringtorg í bæjarfélaginu verði skoðuð í kjölfarið. „Ég geri alveg ráð fyrir því að menn skoði hvort svona aðstæður eru víðar.“ Víða á landinu eru þó hringtorg sem þar sem myndaður hefur verið hóll á þeim miðjum eða gróðri komið fyrir á þeim sem en Eiður segir slíka hönnun oftast hugsaða út frá fagurfræðilegum sjónarmiðum.Hringtorgið eftir breytingarnar.Vísir/Andri „Ég hef séð allskonar útgáfur á hringtorgum víða um land. Þetta er bæði sjónrænt og gera þau fallegri og vissulega til að hindra að menn keyri beint yfir þau. Síðan eru önnur vandamál varðandi þessi hringtorg. Fólk keyrir sérstaklega á hringtorgum sem eru með einni akrein, í staðinn fyrir að taka hringinn þá reynir það að keyra sem beinast til að ná sem mestum hraða yfir hringtorgið. Það er líka vandamál.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira