Öld frá brunanum mikla Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2015 14:04 Tveir menn fórust í brunanum mikla sem breiddist út frá Hótel Reykjavík við Austurstæti. MYND/MAGNÚS ÓLAFSSON
Þann 25. apríl verður ein öld liðin frá einum mesta eldsvoða á Íslandi, brunanum mikla í miðbæ Reykjavíkur. Þá létu tveir menn lífið, tólf hús loguðu og flest brunnu til grunna. Sá bruni hafði mikil áhrif á bæjarbúa á sínum tíma, sem og á skipulagsmál bæjarins, þróun brunavarna og aðbúnað slökkviliðsins. Þetta kemur fram í grein Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, í Fréttablaðsinu. Eldurinn kviknaði á Hótel Reykjavík, sem var stórt og glæsilegt timburhús við Austurstræti 12, en kvöldið áður var brúðkaup Jósephinu Zoëga og Clifford Hobbs haldið þar.Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.„Mikið var um dýrðir og stóð veislan fram á nótt. Síðustu gestir voru að halda til síns heima þegar eldsins varð vart, en hann breiddist hratt út og barst fljótlega í næstu hús. Alls kviknaði í átta húsum við Austurstræti og fjórum við Hafnarstræti, auk skúra. Minnstur varð skaðinn í pósthúsinu. Ingólfshvoll í Hafnarstræti 14 brann að hluta og veggir og gólf Landsbankahússins stóðu eftir.“ Jón Viðar segir frá því að önnur hús hafi verið rústir einar á fáum klukkustundum. Þá bjuggu um 14 þúsund manns í Reykjavík og hann segir að áfallið hafi verið mikið. Mörg hús í hjarta borgarinnar hafi horfið, bæði heimili og vinnustaðir fólks. Mennirnir sem létu lífið voru Runólfur Steingrímsson, vinnumaður á Hótel Reykjavík, sem hafði gengið snemma til náða á hótelinu, og Guðjón Sigurðsson, eigandi Ingólfshvols, sem lést úr reykeitrun í húsi sínu.Ekki tilbúnir þrátt fyrir úrbætur Fyrir brunann hafði verið farið í miklar úrbætur í brunamálum Reykjavíkur. Vatnsveita hafði verið tekin í gagnið 1909, brunasími var lagður um bæinn 1911 og ný slökkvistöð var tekin í notkun 1912. Ný reglugerð um brunamál var samþykkt fyrir Reykjavík árið 1913. „Þá voru tveir starfandi varðmenn í hinni nýju slökkvistöð við Tjarnargötu og 36 fastir slökkviliðsmenn í útkallsliði, sem hringt var út með brunasíma eftir þörfum. Varaliðið, sem í voru allir verkfærir karlar í bænum aðrir en embættismenn, var kallað út með lúðrum.“ Þrátt fyrir það segir Jón Viðar að þegar stóra kallið kom hafi mörgu verið ábótavant. Búnaður hafi verið fábreyttur, slöngur sprungu og brunahanar höfðu skemmst í frosti í miðbænum. „Allt var unnið með handafli, hvort sem það snerist um að draga níðþunga slönguvagna á eldstað eða knýja vatnsdælurnar. Öflug véldæla í eigu einkaaðila var tekin traustataki og notuð við slökkvistörfin. Megináhersla varð fljótlega að reyna að hefta útbreiðslu eldsins til austurs og vesturs og tókst það að lokum.“Þörf á betri tækjum Ljóst var að Slökkvilið Reykjavíkur var ekki nægilega vel tækjum búið til að takast við eldsvoða af þessari stærðargráðu. Véldælan var keypt fyrir slökkviliðið, stigar og svo fljótlega önnur dæla. Þá var turn byggður til að þurrka slöngur og þrír slökkvibílar og sjúkrabíll keyptur á næstu árum. Varðmönnum á slökkvistöðinni var fjölgað áhersla lögð á kunnáttu og meðferð véla og bifreiða. Þar að auki var timburhúsum settar þröngar skorður, bæði varðandi stærð og fjarlægðir á milli húsa. Sem varð til þess að steinsteypa tók yfir sem helsta byggingarefnið. Þá varð bruninn til þess að flýta fyrir stofnun Rafmagnsveitu Reykjavíkur til að leysa gasið af hólmi. „Það má segja að við þennan atburð hafi bærinn byrjað að breytast í borg. Reykjavík var komin í hóp stórborga sem höfðu upplifað stórbruna. Ásýnd bæjarins breyttist þegar steinsteypt stórhýsi risu í stað timburhúsanna sem prýtt höfðu helstu viðskipta- og verslunargötur bæjarins, eflaust ýmsum til ama bæði þá og síðar. En um leið var betur hugað að öryggi íbúanna og eigna þeirra með bættum brunavörnum og aukinni meðvitund um nauðsyn þeirra.“Reykjavíkurborg og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins munu minnast brunans mikla með sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 24.–28. apríl og viðburðum við Austurvöll laugardaginn 25. apríl.
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Fleiri fréttir Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Sjá meira