Hefur ekki stefnt að forsetaframboði Birgir Olgeirsson skrifar 19. júní 2015 14:33 „
Nei, ég hef ekki stefnt á það,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í Harmageddon þar sem hún var spurð hvort hún stefndi að því að verða annar kvenforseti íslenska lýðveldisins. Einhverjir hafa nefnt Katrínu sem líklegan frambjóðanda fyrir forsetakosningarnar árið 2016 en hún sagðist vera nýtekin við sem formaður Vinstri grænna. „Það er mitt verkefni. Ég brenn fyrir þeirri pólitík,“ sagði Katrín en sagðist jafnframt vonsvikin með það fylgi sem Vinstri grænir mældust með í könnun Fréttablaðsins þar sem flokkurinn mældist með 7 prósenta fylgi. Þegar hún var spurð hvort hún myndi velja að verða forseti Íslands eða formaður sameinaðs flokks vinstri manna sagðist hún frekar vilja leiða sameinaðan vinstri flokk, ef hún yrði að velja. Talið barst að fylgi Vinstri grænna og hvaða ástæður gætu verið fyrir því að flokkurinn mælist svo neðarlega. Frosti Logason, annar af þáttastjórnendum Harmageddon, nefndi í því samhengi forsjárhyggju sem hafi fylgt flokknum í gegnum tíðina. Katrín svaraði á móti að margir gætu talið kynjakvóta vera forsjárhyggju. Hún sagði að ef stjórnmálaflokkur vill hafa mikil áhrif á samfélagið þá þurfi hann að grípa til „drastískra“ aðgerða. „Alveg eins og kvennalistinn var drastísk aðgerð, alveg eins og það var mjög róttæk aðgerð að konur fengu kosningarétt á sínum tíma, þá er það róttæk aðgerð að segja þið verðið að hafa konur í stjórnum fyrirtækja og það þýðir ekki að segja að þær séu ekki til og þær séu ekki hæfar. Þetta finnst mörgum vera forsjárhyggja. Mér finnst þetta sýna að maður sé reiðubúinn til að beita aðgerðum til að tryggja jafnan rétt.“
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Þjófnaður tilkynntur í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Sjá meira