Innlent

Árleg loftsteinadrífa nær hámarki í nótt: „Með bestu loftsteinadrífum á árinu“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Hin árlega loftsteinadrífa Persítar nær hámarki í nótt og má því búast við miklu sjónarspili, ef veður leyfir. Gera má ráð fyrir að um áttatíu til hundrað loftsteinar muni brenna upp í andrúmslofti jarðarinnar í nótt, en að sögn Sævars Helga Bragasonar, formanns Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, gæti fólk séð einhverja steina hrapa til jarðar ef það tekur sér um klukkustund og fylgist með hátt í austri.

„Eini gallinn hjá okkur er að það er dálítið bjart en yfir dimmasta tíma næturinnar þá gætu sést þeir allra allra björtustu steinarnir úr drífunni, eða í kringum eitt leytið í nótt, og þeir geta orðið ansi bjartir þannig að það er um að gera að fylgjast með. Það er best að gera það með því að horfa í austurátt upp úr miðnætti og fylgjast með í nokkurn tíma, eða í klukkutíma,” segir Sævar og bætir við að um sé að ræða eina bestu loftsteinadrífu ársins.

Sævar Helgi Bragason.vísir/anton
„Þetta er með bestu loftsteinadrífum á árinu, önnur mjög góð er í desember en hún heitir Gemenítar. En þessar loftsteinadrífur svíkja okkur sjaldnast,” segir hann.

„Þetta eru litlar agnir sem má rekja til halastjörnu sem heitir Swift Tuttle sem er á 130 ára hringferð um sólina. Þegar jörðin fer í gegnum slóð þessarar halastjörnu þá verður þessi loftsteinadrífa sem heitir Persítar.”

Að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands eru ekki miklar líkur á að veðurskilyrði verði til fyrirmyndar, en von er á að það rofi eitthvað til þegar líður á kvöldið.

Nafnið Persítar er dregið af stjörnumerkinu Perseifur sem er afar áberandi á norðurhveli himins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×