Loðnuskipin leita að loðnu á Vestfjörðum Birgir Olgeirsson skrifar 7. mars 2015 18:37 Aðalsteinn Jónsson fyrir utan Skutulsfjörð í Ísafjarðardjúpi. Skipið er nú í höfn á Ísafirði. Vísir/Hafþór Gunnarsson
Loðnuveiðiskip hafa leitað loðnu inn á flestum fjörðum og víkum á Vestfjörðum í dag, allt frá Patreksfirði og inn á Ísafjarðardjúp. Hafþór Gunnarsson, myndatökumaður Stöðvar 2, tók þess mynd af Aðalsteini Jónssyni SU-11 frá Eskifirði að þreifa fyrir sér fyrir utan Skutulsfjörð í Ísafjarðardjúpi í dag en skipið leitaði í var inn í Ísafjarðarhöfn nú síðdegis vegna brælu. Daði Þorsteinsson er skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni en hann segir enga loðnu að sjá í Ísafjarðardjúpi. „Það er vitlaust veður hérna fyrir utan og haugakvika. Það er aðallega sjólagið sem er búið að vera að aftra,“ segir Daði sem segir áhöfnina hafa næturstað á Ísafirði. „Enda hvergi betra að vera,“ segir Daði. Hann segir loðnuvertíðina hafa gengið ágætlega en veðrið hafi þó verið skelfilegt. Vilhelm Þorsteinsson EA 11 frá Akureyri hefur einnig leitað að loðnu á Vestfjörðum en er nú í vari á Patreksfirði. „Við erum inni á Patreksfirði. Það er alltof mikill sjór til að stunda nótaveiðarnar,“ segir Sigurður Guðmundsson, stýrimaður á Vilhelm, sem segir loðnu vera á þessum slóðum. „Við sáum loðnu í holunni sunnan við Víkurál, þannig að það er einhver loðna hérna það eru bara ekki aðstæður til að gera neitt,“ segir Sigurður sem eins og Daði er ekki sáttur við tíðarfarið undanfarnar vikur. „Vertíðin hefur gengið ágætlega fyrir utan að tíðarfarið hefur ekki verið hagstætt. Þegar við höfum verið að hefur það gengið allt í lagi. Það er bara tíðarfarið sem hefur háð okkur.“
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Innlent Fleiri fréttir Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Sjá meira