Dæmdur kynferðisbrotamaður áfram í farbanni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. febrúar 2015 16:41 Manninum var einnig sakaður að hafa káfað á konunni þar sem hún lá á fjórum fótum á svefnherbergisgólfinu að kasta upp. Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur staðfest framlengingu á farbannsúrskurði yfir manni sem dæmdur var í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi í desember síðastliðnum fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa sært blygðunarsemi konunnar með því að áreita hana kynferðislega. Sex af mánuðum níu eru skilorðsbundnir. Fór hann inn í svefnherbergi konunnar, fróað sér fyrir framan andlit hennar og fékk sáðfall yfir öxl hennar og hár sem og kodda sem hún lá á. Manninum var einnig sakaður að hafa káfað á konunni þar sem hún lá á fjórum fótum á svefnherbergisgólfinu að kasta upp. Á þeim tímapunkti er maðurinn sagður hafa losað brjóstahaldara hennar, þuklað á brjóstum hennar og strokið kynfæri hennar innanklæða.Takmörkuð tengsl við landið Maðurinn neitaði sök en DNA rannsókn á sýnum úr hári konunnar og brjóstahaldara komu heim og saman við manninn. Hann er ekki íslenskur ríkisborgari og með takmörkuð tengsl við landið, að því er segir í greinargerð ríkissaksóknara. Maðurinn tilkynnti að hann hyggðist áfrýja dómnum og var áfrýjunarstefna gefin út af ríkissaksóknara þann 5. janúar. Þess er nú beðið að frumgögn berist frá héraðsdómi vegna málsins. Verður maðurinn í farbanni á meðan á áfrýjunarfresti stendur eða fram að afplánun dóms en þó ekki lengur en til 10. apríl. Maðurinn hefur verið í farbanni frá 30. apríl síðastliðnum. Í greinargerðinni segir jafnframt að með hliðsjón af því að dómfelldi hafi lítil tengsl við landið, hann hafi einungis búið hér í tæpt ár, og sé nú að skilja við eiginmann sinn, sé það mat ríkissaksóknara að veruleg hætta sé á að hann reyni að komast úr landi til að forðast fullnustu dómsins.Sjá dóm Hæstaréttar hér.
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Enn eitt innbrotið til rannsóknar Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Sjá meira