Geta framleitt 4.000 tonn af metanóli svavar hávarðsson skrifar 17. apríl 2015 07:30 Stækkun verksmiðjunnar hefur tekið tæpt ár. mynd/CRI
Carbon Recycling International (CRI) hefur lokið stækkun verksmiðju sinnar í Svartsengi og hefur framleiðslugeta hennar þrefaldast. Hægt er að framleiða fjögur þúsund tonn af endurnýjanlegu metanóli á ári. Framleiðsla verksmiðjunnar dregur jafn mikið úr losun koltvísýrings og um 2.200 rafmagnsbílar. Minnkun gróðurhúsalofttegunda jafngildir því áhrifum þess að sjöfalda flota rafbíla í landinu, segja forsvarsmenn fyrirtækisins. Verksmiðjan er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum og er fyrirtækið stærsti framleiðandi umhverfisvæns eldsneytis hér á landi. Í verksmiðjunni er endurnýjanlegt metanól, sem er fljótandi eldsneyti, búið til úr rafmagni með samruna vetnis og koltvísýrings.Ólafur JóhannssonÓlafur Jóhannsson, forstöðumaður samskipta- og sölumála hjá CRI, segir spurður um sölumálin að helstu viðskiptavinir á Íslandi hafa verið framleiðendur lífdísils, en metanól er nauðsynlegur þáttur í að breyta fitu úr jurtum og dýrum í dísil. „Erlendir viðskiptavinir okkar eru jöfnum höndum lífdísilframleiðendur og olíufélög, til dæmis í Hollandi og Svíþjóð. Íslensku olíufélögin eru að setja upp og prófa nauðsynlegan búnað, en þau hafa einfaldlega ekki verið í stakk búin til þess að hefja íblöndun í bensín. Söluverðið og þar með söluverðmætið er eðlilega trúnaðarmál á milli okkar og viðskiptavina okkar,“ segir Ólafur en framkvæmdir við verksmiðjuna hafa staðið frá síðasta sumri og að þeim hafa unnið á framkvæmdatímanum tugir verktaka, auk starfsmanna CRI. Nýlega gerði CRI samning með samstarfsaðilum frá Þýskalandi, Spáni og Belgíu um byggingu eldsneytisverksmiðju í Þýskalandi til framleiðslu metanóls með sömu aðferðum og beitt er í Svartsengi. Þar er nýttur útblástur frá kolaorkuveri orkufyrirtækisins Steag í Lünen í Þýskalandi og þannig dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda. Verkefnið hlaut styrk úr Horizon 2020 rannsóknaráætlun Evrópusambandsins.Milljarðar lítra af metanóli brenndirCarbon Recycling International (CRI) var stofnað á Íslandi árið 2006 með það að markmiði að þróa lausnir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með framleiðslu á umhverfisvænu eldsneyti.CRI tók í notkun fyrsta áfanga eldsneytisverksmiðjunnar í Svartsengi árið 2012. Hjá fyrirtækinu starfa á fjórða tug starfsmanna á Íslandi og erlendis.Hér á landi, í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar, er krafist aukinnar notkunar á endurnýjanlegu eldsneyti, með það að markmiði að draga úr notkun á olíu í samgöngum, til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og sporna þannig við hnattrænum loftslagsbreytingum. Þá ryður metanól sér nú til rúms sem skipaeldsneyti, en með notkun þess má losna við áhrif mengandi brennisteins- og nitursambanda á lífríki sjávar.Samkvæmt bresku gagnaveitunni Argus JJ&A voru á síðasta ári um 32 milljarðar lítra af metanóli notaðir sem eldsneyti, aðallega í Evrópu og Asíu.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Sjá meira