Segir orð Ólínu dæma sig sjálf Samúel Karl Ólason skrifar 30. desember 2015 16:56 Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365. Vísir/Silja Magg
Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365, segir orð Ólínu Þorvarðardóttur, alþingismanns Samfylkingarinnar, dæma sig sjálf. Ólína skrifaði í morgun pistil á vefsvæði sínu hjá Pressunni, þar sem hún sagði forsíðumynd Fréttablaðsins vera „Mellumynd“. „Hér er skólabókardæmi um það hvernig hagsmunatengsl fjölmiðils og valdhafa tvinnast saman á einni mynd. „Mellumynd“ gæti einhver kallað þetta (afsakið orðbragðið). Hér má sjá fjölmiðil koma sér í mjúkinn hjá valdhöfum, sem aftur njóta góðs af hinni jákvæðu birtingarmynd þeirra framan við vörumerki mikilsráðandi fjölmiðils,“ skrifaði Ólína. Hún sagði myndina vera óþægilega fyrir unnendur frjálsrar fjölmiðlunar og opinnar umræðu. Um er að ræða árleg verðlaun sem Markaðurinn og 365 veita fyrir viðskipti ársins sem dómnefnd Markaðarins og Stöðvar 2 velur. Dómnefndin komst að þeirri niðurstöðu að samkomulag við kröfuhafa föllnu bankanna væru viðskipti ársins. Kristín minnir á að í dómnefndinni sitji mikils metið fólk úr viðskiptalífinu, karlar sem konur, en lista yfir álitsgjafana má sjá í Fréttablaði dagsins. Í dómnefndinni voru: Árni Hauksson fjárfestir - Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins - Björgvin Guðmundsson, meðeigandi hjá KOM - Eggert Þ. Aðalsteinsson, sérfræðingur hjá Virðingu - Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands - Haukur Þ. Hauksson, aðstoðarframkvæmdastjóri SFS - Haukur Örn Birgisson hæstaréttarlögmaður - Helga Hlín Hákonardóttir héraðsdómslögmaður - Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins - Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, sérfræðingur á fyrirtækjasviði Arion - Hjálmar Gíslason, stofnandi DataMarket - Hrund Rudólfsdóttir, forstjóri Veritas - Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu - Ingvar Haraldsson blaðamaður - Jón Hákon Halldórsson blaðamaður - Karen Kjartansdóttir, upplýsingafulltrúi SFS - Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte og formaður Samtaka verslunar og þjónustu - Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda - ÓIi Kr. Ármannsson blaðamaður - Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands - Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku - Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður Greiningardeildar Arion - Svana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Stika - Sæunn Gísladóttir blaðamaður - Thor Thors, framkvæmdastjóri Kóða - Vilhjálmur Vilhjálmsson, sjóðsstjóri hjá Stefni - Þorbjörn Þórðarson fréttamaður - Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Ísland.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Fleiri fréttir Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Sjá meira