Fjárskortur stendur frumkvæði umboðsmanns fyrir þrifum Snærós Sindradóttir skrifar 21. desember 2015 07:00 Tryggvi Gunnarsson hefur verið umboðsmaður Alþingis frá árinu 1998. Hann tók upp forathuganir til að bregðast við fjárskortinum. vísir/gva
Engin frumkvæðisathugun hefur farið fram hjá Umboðsmanni Alþingis á árinu því álag og fjárveitingar gera embættinu ekki kleift að sinna þeim. Þetta kemur fram í nýjustu ársskýrslu embættisins. „Ég tel þessa stöðu ekki ásættanlega miðað við núgildandi lög sem og þær ábendingar sem ég fæ og þær upplýsingar sem koma fram við athuganir á kvörtunum. Þá hefur heldur ekki gefist tækifæri til að ljúka sem skyldi eldri frumkvæðismálum og kvörtunum sem áformað hefur verið að ljúka í tengslum við þau,“ segir í skýrslunni. Frumkvæðisathuganir eru verkfæri umboðsmanns til að hafa eftirlit með stjórnvöldum án þess að kvörtun berist embættinu fyrst. Oftar en ekki er vísað til fjölmiðlaumfjöllunar þegar frumkvæðisathugun hefst. Umboðsmaður Alþingis hefur brugðist við vandanum með svokölluðum forathugunarmálum. Þá er óskað eftir upplýsingum frá stjórnvöldum og lagt mat á hvort tilefni sé til að taka tiltekið málefni til athugunar. Þetta hefur sautján sinnum verið gert á þessu ári, nú síðast þegar óskað var eftir upplýsingum um málsmeðferð og rannsókn Útlendingastofnunar á umsóknum um mannúðarleyfi af heilbrigðisástæðum.Björg Thorarensen lagaprófessorForathugunin á útlendingamálum hófst vegna brottflutnings tveggja albanskra fjölskyldna en tveir langveikir drengir, þriggja ára og átta mánaða, höfðu notið heilbrigðisþjónustu hér á landi. Sem dæmi um aðra forathugun sem hefur átt sér stað á árinu er beiðni um upplýsingar um möguleika aðstandenda til að leggja fram kvörtun hjá landlækni yfir mistökum eða vanrækslu sem þeir telja hafa leitt til andláts sjúklings. „Í stað þess að ákveðin atriði detti niður þá er frekar vakin athygli stjórnvalda á þeim og þau leggja þá mat á hvort þau taki sjálf boltann eða hvort umboðsmaður þarf að fara í málið,“ segir Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis. „Þetta er mikilvægasta stofnunin sem hefur eftirlit með framkvæmdavaldinu og stjórnsýslu á vegum stjórnvalda,“ segir Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Hún játar því að að vissu leyti sé óheppilegt að stjórnvöld sjái um fjárveitingu til embættisins en segir að einhver þurfi að gera það. Fjárveitingarvaldið verði ekki tekið af Alþingi. Athyglisverðar frumkvæðisathuganirUmboðsmaður Alþingis hóf rannsókn á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þáverandi innanríkisráðherra, og Stefáns Eiríkssonar, þáverandi lögreglustjóra, vegna lekamálsins svokallaða. Forathugun hófst í kjölfar fréttaflutnings DV af því að ráðherra hefði átt í samskiptum við lögreglustjórann um meðferð trúnaðarupplýsinga úr ráðuneytinu á sama tíma og lögreglurannsókn var í gangi. Fjölmiðlar greindu frá því að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði hafið fíkniefnaleit í Tækniskólanum í Reykjavík árið 2010. Umboðsmaður leitaði svara við því af hvaða tilefni leitin var gerð og á hvaða lagagrundvelli. Niðurstaða umboðsmanns var að leit lögreglunnar hefði ekki stuðst við lagaheimild og beindi þeim tilmælum til lögreglustjórans að þau sjónarmið sem rakin voru í álitinu yrði höfð í huga í framtíðarstörfum lögreglunnar. Árið 2010 komst umboðsmaður að því að oft væri misbrestur á því að rökstuddir úrskurðir mannanafnanefndar væru birtir opinberlega. Bætt var úr birtingunni snarlega.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira