Mikið fjölgað á árinu hjá Kvennaathvarfinu Snærós Sindradóttir skrifar 29. desember 2015 07:00 Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir að það leiti ekki endilega fleiri til athvarfsins um áramót en jól. vísir/valli
Mun fleiri hafa leitað til Kvennaathvarfsins á árinu sem er að líða en á síðasta ári. Í október höfðu fleiri komið í viðtöl til Kvennaathvarfsins en allt síðasta ár. Þann tólfta janúar síðastliðinn skrifuðu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, undir samstarfssamning um átak gegn ofbeldi. Markmið samningsins var að bæta verklag lögreglunnar og annarra fagaðila í heimilisofbeldismálum. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir að strax þá hafi mikil fjölgun orðið á þeim sem leituðu til athvarfsins vegna ofbeldis. „Það voru hundrað konur hjá okkur í dvöl í fyrra en þær verða að minnsta kosti 120 á þessu ári,“ segir Sigþrúður. Að sögn Sigþrúðar skilar umræða í þjóðfélaginu sér jafnframt í fjölgun. Þá sé fagfólk duglegra að ráðleggja konum að leita til athvarfsins. Um jólin voru níu manns, konur og börn, í kvennaathvarfinu. Sigþrúður segir að þá leiti konur til athvarfsins á milli jóla og nýárs, alveg eins og gengur og gerist aðrar vikur ársins. Hún segir þó ekki endilega líklegra að konur komi á nýársnótt en jólanótt, þrátt fyrir að margir kunni að draga þá ályktun vegna mikillar áfengisneyslu um áramót. „Með nýju verklagi lögreglunnar á að fækka þeim tilvikum þar sem konur koma á náttkjólnum úr miðju ofbeldisatviki. Það er algengt að við lesum í fjölmiðlum um fimm útköll vegna heimilisofbeldis þá nóttina en ekkert þeirra kom til okkar. Þær sem eru beittar ofbeldi á nýársnótt skila sér svo kannski tuttugasta janúar.“ Fjárframlag til Kvennaathvarfsins hækkaði um ríflega fimm milljónir á nýjum fjárlögum og verður 70,6 milljónir króna á árinu. Þá hefur athvarfið samning við Reykjavíkurborg um fjárframlög. Framlögin duga fyrir daglegum rekstri, launakostnaði starfsmanna, hita og rafmagni auk matar fyrir dvalarkonur og börn.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira