Ökumenn finna fyrir vetrinum: Hálkublettir víða um land Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 22. október 2015 07:35 Ökumenn gætu verið áminntir í dag um það að veturinn sé á næsta leyti enda gætir víða hálku. Vísir/Vilhelm
Vetur konungur boðar komu sína og hefur í raun nú þegar látið á sér kræla víðsvegar um land í formi hálku og hálkubletta. Hálka er á Holtavörðuheiði og hálkublettir á Bröttubrekku en vegir á Vesturlandi eru annars greiðfærir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Því skulu þeir sem fara akandi um landið fara varlega. Þá er hálka eða hálkublettir víða á fjallvegum á Vestfjörðum, hálkublettir eru á Vatnsskarði en snjóþekja á Öxnadalsheiði og við Mývatn og áfram austur á öræfin líkt og segir í tilkynningunni. Eins er snjóþekja á Dettifossvegi og í Bárðadal. „Hálkublettir eru á Möðrudalsöræfum en hálka Háreksstaðaleið, Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði og á Oddskarði. Þæfingsfærð er á Hellisheiði eystri. Hálkublettir eru á Breiðdalsheiði en snjóþekja á Öxi.“Framkvæmdir verða á Reykjanesbraut við hringtorg. Vísir/Pjetur.Vegagerðin vekur einnig athygli á því að hálendisvegir séu víða orðnir ófærir. „Skemmdir hafa orðið á Eyjafjarðarleið (F821) og á austasta hluta Fjallabaksleiðar nyrðri (F208) og eru þeir vegir því lokaðir.“Röskun í höfuðborginni vegna vegaframkvæmda Í höfuðborginni eru eftirfarandi götur og svæði lokuð en það ekki vegna veðurs heldur vegaframkvæmda. „Vegna framkvæmda við hringtorg á Reykjanesbraut er lokað fyrir umferð um Stekk. Umferðarhraði hefur verið lækkaður í 50 km/klst á vinnusvæðinu. Vegfarendum er bent á að nota mislæg gatnamót í Innri-Njarðvík eða hringtorg við Grænás. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í nóvember. Unnið er við breikkun og lagfæringar á Álftanesvegi um Engidal milli Hafnarfjarðarvegar og Prýðihverfis og má búast við nokkurri röskun á umferð á meðan. Vegna framkvæmda við undirgöng undir Vesturlandsveg á móts við Aðaltún í Mosfellsbæ, er hraði er tekinn niður í 50 km/klst. Áætlað er að framkvæmdir standi fram í nóvember. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem vinna við vegsvæði veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði Sjá meira