Dæmdur fyrir kynferðisbrot á Sogavegi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. október 2015 16:58 Maðurinn var dæmdur fyrir kynferðislega áreitni á bílastæðinu hjá Fiskikónginum á Sogavegi. Vísir/Arnþór
28 ára karlmaður var á dögunum dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni í garð konu sem hann hitti fyrir tilviljun á Laugaveginum í miðbæ Reykjavíkur í október 2013. Konan, sem hafði orðið viðskila við vinkonu sína og var símalaus, segir manninn hafa sagt sér að hann væri leigubílsstjóri og boðist til að skutla sér heim. Hún þáði boðið. Fljótlega hafi hún áttað sig á því að maðurinn var ekki leigubílstjóri en maðurinn kom fyrst við á heimili sínu og bauð henni inn.Ræddu um uppáhaldsmatinn Atburðarásin í málinu liggur nokkuð ljós fyrir og ber þeim saman um hvað fór fram í bílnum að flestu leyti. Konan neitaði að fara inn til mannsins og ítrekaði að hún vildi bara fara heim. Á ferð þeirra spurði maðurinn konuna hver væri uppáhaldsmatur hans og svaraði hún slátur. Í kjölfarið ók maðurinn að bílastæðinu hjá Fiskikónginum við Sogaveg og lagði þar bílnum. Óhætt er að segja að upplifun þeirra af því sem fram fór í bílnum sé ólík þótt atburðarásin sé svipuð. Konan segir manninn hafa kysst sig blautum kossum sem hún hafi ekki svarað heldur hafi hún verið alveg stjörf. Endurtekið hafi hún svarað að hún vildi bara komast heim. Maðurinn hafi reynt að láta konuna fróa sér og veita sér munnmök sem hún hafi náð að koma í veg fyrir.Skildi konuna þannig að hana langaði í „slátur“ Maðurinn sagðist hafa haldið að konan væri í orðaleikjum við sig þegar hún sagði uppáhaldsmat sinn vera slátur. Hefði hann skilið konuna á þann veg að hana langaði í slátur og ætti við getnaðarlim hans. Hún myndi vilja sýna honum hvað hún kynni. Hann viðurkenndi að hafa á endanum, eftir atlot sem hún hafi ekki haft á móti, klætt sig úr buxunum og hafa beint líkama hennar að lim hans og höfuðið stefnt að limnum. Að lokum varð manninum ljóst að konan vildi ekki náin kynni með honum og ók áleiðis í miðborgina þar sem hún átti heima. Við Alþingisreitinn var bifreiðin svo stöðvuð. Sagði maðurinn lögreglu fyrst að hann væri með frænku sína í bílnum en greinilegt var að konan var skelkuð. Svo greindi hún frá því að hún þekkti manninn ekki neitt en á sama tíma talaði hann um hana sem ástina sína.Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 25. september.Vísir/ValliFramburður konunnar trúverðugur Áður en aðalmeðferð í málinu hófst var kröfu ákærða um frávísun á grundvelli þess að rannsókn málsins væri ábótavant hafnað. Rök ákærða voru þau að rannsókn lögreglu hefði hafist á grundvelli hugboðs og án þess að fyrir lægi kæra, skýrsla eða frásögn. Maðurinn var ákærður fyrir kynferðislega áreitni á meðan á bílferð stóð en þeim hluta var vísað frá af því engar lýsingar um hvað þar fór fram var að finna í ákæru. Hann var einnig ákærður fyrir kynferðislega áreitni á bílastæðinu og hlaut sem fyrr segir þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir þann hluta. Í dómnum segir að framburður konunnar fyrir dómi sé trúverðugur og styðjist við framburð vitna, lögreglumanna á vettvangi og lögreglustöð, móður hennar og vinkonu auk sálfræðings sem sagði konuna hafa verið veika vegna atvika á fyrri skeiðum. Slíkum einstaklingum hætti einmitt til að verða fórnarlömb ofbeldismanna. Braut gegn konunni Það er niðurstaða dómsins að manninum hefði ekki átt að geta dulist að konan var mótfallin því að hafa við hann kynferðisleg samskipti. „Þetta átti honum að verða ljóst eigi síðar en þegar hún vildi ekki fara með honum inn á heimili hans. Engu að síður ók hann að nefndu bílastæði og áreitti brotaþola þar eins og rakið var. Með þessu gerðist hann sekur um kynferðislega áreitni gagnvart brotaþola og braut þar með gegn henni eins og honum er gefið að sök í ákæru.“ Þar sem maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um hegningarlagabrot þótt hæfileg refsing vera þriggja mánaða skilorðsbundinn dómur. Þá þarf hann að greiða konunni 400 þúsund krónur í bætur.Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Fleiri fréttir Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi Sjá meira