Undirbúa valið á fyrsta hópi flóttamanna Una Sighvatsdóttir skrifar 24. september 2015 00:00 Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir að Akureyringar séu spenntir að takast á við krefjandi verkefni. Vísir/Pjetur
Akureyri er fyrsta bæjarfélagið sem taka mun á móti sýrlensku flóttafólki. Bæjarstjóri Akureyrar fundaði með velferðarráðherra um málið í dag. Akureyringar tóku síðast á móti flóttafólki árið 2003, fjölskyldur frá löndum fyrrum Júgóslavíu, sem allar búa enn í Eyjafirðinum. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri segir að reynslan af því verkefni muni nýtast og Akureyringar séu spenntir að takast á við krefjandi verkefni. „Að sjálfsögðu erum við bara mjög spennt og við höfum náttúrulega góða reynslu, það er þess vegna sem við buðum fram okkar aðstoð. En það eru reyndar komin 12-13 ár síðan síðasti hópur kom til okkar, þannig að það er svo sem ýmislegt nýtt í þessu í dag."Samsetning hópsins skiptir máli Fundurinn í dag snerist því að mestu um að bera saman bækur bæjarins og ráðuneytisins, til að undirbúa valið á þeim hópi sem hingað kemur fyrstur. Stefnan er að taka við stórfjölskyldum og er miðað við um 50 manns. Akureyri hefur þó ekki sétt ákveðinn kvóta á hve marga bærinn geti tekið við. „Nei í rauninni ekki, enda snýst þetta ekki beinlínis um fjölda og þetta snýst alls ekki um einhverja keppni um hver fær flesta. Stærðin er ekki endilega relevant, en auðvitað skiptir það máli að samsetning hópsins sé sem réttust. Og þegar ég tala um samsetninguna, þá að þetta séu einstaklingar sem við getum veitt sambærilega þjónust, að hópurinn sé svolítið líkur innbyrðir. Þannig að það er aðalviðfangsefnið í dag," segir Eiríkur. Hann segir fjölmarga Akureyringa hafa boðið fram aðstoð sína í verkefninu en Rauði krossinn muni leika lykilhlutverk enda með þéttofið net sjálfboðaliða.Upplýsinga að vænta innan þriggja vikna Til að flýta fyrir ferlinu verður ekki send mótttökunefnd út heldur verður gert myndband um kosti og galla Íslands, svo flóttafólkið átti sig betur á þeim aðstæðum sem hér eru. Innan þriggja vikna er von á upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um hvaða fólk kemur til greina, og verður því miðlað jafnóðum til Akureyrarbæjar að sögn Eyglóar Harðardóttur. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að sveitarfélagið hafi sömu upplýsingar og við erum að vinna með varðandi það hvaða einstaklingar eru að koma. Þá getur það hugað betur að þáttum eins og því sem snýr að húsnæðismálum, hvernig hægt sé að styðja viðkomandi fjölskyldur, eins og snýr að börnum í skólanum og líka möguleika fólks til að fá vinnu," segir Eygló. Fleiri sveitarfélög hafa lýst yfir vilja til að taka á móti flóttafólki og verður talað við þau á næstunni. „Svo hefur gerst sú ánægjulega þróun undanfarið að mun fleiri lönd hafa boðið sig fram gagnvart Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, til að bjóða vkótaflóttamönnum að koma," bætir Eygló við. „En það er hinsvegar staðreynd að það er bara brotabrot miðað við þann fjölda fólks sem er í flóttamannabúðum í nágrannalöndum Sýrlands."Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri AkureyrarSamsetning hópsins skiptir máli Fundurinn í dag snerist því að mestu um að bera saman bækur bæjarins og ráðuneytisins, til að undirbúa valið á þeim hópi sem hingað kemur fyrstur. Stefnan er að taka við stórfjölskyldum og er miðað við um 50 manns. Akureyri hefur þó ekki sétt ákveðinn kvóta á hve marga bærinn geti tekið við. „Nei í rauninni ekki, enda snýst þetta ekki beinlínis um fjölda og þetta snýst alls ekki um einhverja keppni um hver fær flesta. Stærðin er ekki endilega relevant, en auðvitað skiptir það máli að samsetning hópsins sé sem réttust. Og þegar ég tala um samsetninguna, þá að þetta séu einstaklingar sem við getum veitt sambærilega þjónust, að hópurinn sé svolítið líkur innbyrðir. Þannig að það er aðalviðfangsefnið í dag," segir Eiríkur. Hann segir fjölmarga Akureyringa hafa boðið fram aðstoð sína í verkefninu en Rauði krossinn muni leika lykilhlutverk enda með þéttofið net sjálfboðaliða.Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherraUpplýsinga að vænta innan þriggja vikna Til að flýta fyrir ferlinu verður ekki send mótttökunefnd út heldur verður gert myndband um kosti og galla Íslands, svo flóttafólkið átti sig betur á þeim aðstæðum sem hér eru. Innan þriggja vikna er von á upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um hvaða fólk kemur til greina, og verður því miðlað jafnóðum til Akureyrarbæjar að sögn Eyglóar Harðardóttur. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að sveitarfélagið hafi sömu upplýsingar og við erum að vinna með varðandi það hvaða einstaklingar eru að koma. Þá getur það hugað betur að þáttum eins og því sem snýr að húsnæðismálum, hvernig hægt sé að styðja viðkomandi fjölskyldur, eins og snýr að börnum í skólanum og líka möguleika fólks til að fá vinnu," segir Eygló. Fleiri sveitarfélög hafa lýst yfir vilja til að taka á móti flóttafólki og verður talað við þau á næstunni. „Svo hefur gerst sú ánægjulega þróun undanfarið að mun fleiri lönd hafa boðið sig fram gagnvart Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, til að bjóða vkótaflóttamönnum að koma," bætir Eygló við. „En það er hinsvegar staðreynd að það er bara brotabrot miðað við þann fjölda fólks sem er í flóttamannabúðum í nágrannalöndum Sýrlands."
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Brenndu rangt lík Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira