Ísland og Bandaríkin eiga ekki í viðræðum um varanlega staðsetningu liðsafla Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 10. september 2015 20:59 Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Robert Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Mynd/Utanríkisráðuneytið „
Íslensk stjórnvöld hafa ekki haft frumkvæði að því að ræða varanlega staðsetningu bandarísks liðsafla á Íslandi og viðræður þess efnis eiga sér ekki stað á milli ríkjanna.“ Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis um viðræður Roberts Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra sem Björn Bjarnason fjallaði um í vikunni. „Í tilkynningu um fund þeirra segir utanríkisráðuneytið að ráðherrarnir hafi rætt „tvíhliða öryggis- og varnarmálasamstarf Íslands og Bandaríkjanna sem gagnkvæmur áhugi er á að efla frekar“,“ segir Björn á síðunni Varðberg.Ráðherra ekki haft frumkvæði að umræðum um aukningu liðsafla„Íslensk stjórnvöld hafa í samskiptum við Bandaríkin lagt áherslu á að bandaríski flugherinn haldi áfram árlegri þátttöku í loftrýmisgæslu á Íslandi og komi hingað til æfinga sem boðað er til, meðal annars á vegum Atlantshafsbandalagsins. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að bandarísk hermálayfirvöld leggi eigið mat á lágmarksþörf varnarmannvirkja- og búnaðar á Íslandi til að geta framfylgt skuldbindingum Bandaríkjanna sem felast í varnaráætlun Íslands og öðrum varnaráætlunum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Slíkt mat er ein af forsendum þess að íslensk stjórnvöld geti viðhaldið varnarviðbúnaði sem mætir þörfum Íslands hverju sinni og þar sem jafnframt er tekið tillit til rekstrarhagkvæmni,“ segir Urður. Roberts Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti landið í vikunni og fundaði með Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra á þriðjudag. „Á umræddum fundi með varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna í vikunni lagði utanríkisráðherra áherslu á að viðeigandi varnarviðbúnaður sé til staðar á Íslandi og að íslensk stjórnvöld hafi sinnt mikilvægi varnarhlutverki frá brottför varnarliðsins. Hins vegar hefur komið fram í samtölum við Bandaríkjamenn það sjónarmið að í ljósi breytts öryggisumhverfis gæti verið ástæða fyrir bandarísk stjórnvöld að auka viðveru bandarísks liðsafla á Íslandi. Ráðherra hefur ekki sjálfur haft frumkvæði að því að reifa slík atriði.“
Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Innlent Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Sjá meira