Greiðir bílaleigu 2.000 evrur eftir að hafa ekið á kind Jóhann Óli Eiðsson skrifar 5. ágúst 2015 22:07 Lömd ærinnar eru nú móðurlaus. vísir/pjetur
Þýskur maður, sem staddur er hér á landi, þarf að greiða bílaleigu 2.000 evrur vegna skemmda sem bíll leigunnar varð fyrir er kind hljóp í veg fyrir bíl hans þar sem kaskótryggingar bifreiða ná ekki yfir tjón sem dýr valda. Justin Voff hefur dvalið hér á landi síðustu fjóra mánuði sem starfsnemi á dagskrárdeild RIFF. Helgar sínar hefur hann notað til þess að ferðast um landið og hefur hann leigt bíla hjá hinum ýmsu bílaleigum. Um síðustu helgi var hann á ferð í Norðurárdal er kind með tvö lömb hljóp í veg fyrir bíl hans.Sjá einnig: Hestar stórskemmdu bíla graunlausra veiðimanna „Það var enginn annar möguleiki en að keyra á hana,“ segir Justin en atvikið átti sér stað á frídegi verslunarmanna er hann var á leið niður af Holtavörðuheiði. Tvö lömb fylgdu kindinni en ærin drapst við áreksturinn. Justin hringdi á lögregluna sem kom og liðsinnti honum. Bíllinn var sóttur og hann tók rútuna til Reykjavíkur. Í dag átti hann fund með fulltrúum bílaleigunnar og fékk að vita að bíllinn væri ekki tryggður fyrir tjóni sem þessu. Þarf hann því að greiða 2.000 evrur, tæpar 300.000 krónur, vegna þessa. „Mér finnst þetta hálfblóðugt þó ég sé ekki bílasérfræðingur. Mér skildist á þeim að bíllinn væri ekki það skemmdur og gæti verið kominn á götuna aftur eftir helgi. Að auki er nærri fjórfalt dýrara að leigja bíl núna heldur en í vor,“ segir Justin. Hann segir að í vor hafi dagleiga kostað 35 evrur að leigja bílinn en nú sé það 120 evrur.Ákvæði sem er hjá öllum bílaleigum Bíllinn sem Justin leigði var Toyota Yaris sem hann leigði af Sad Cars bílaleigunni. Sigurður Smári Gylfason er eigandi Sad Cars og kannast til málsins. „Hann virðist hafa verið nálægt hámarkshraða er kindin hljóp fyrir bílinn og það er alveg spurning hvort það borgi sig að gera við hann,“ segir Sigurður. Brettið, stuðarinn og húddið er allt ónýtt og að auki er vatnskassinn sprunginn. „Bíllinn er í raun ónýtur.“ „Þetta er víst svona, og það er ekkert bundið við okkur, að tjón af völdum dýra fellur ekki undir trygginguna. Mig rámar til dæmis í það fyrir einhverjum árum að hestar hafi verið að naga bíla og það fékkst ekki bætt,“ segir Sigurður. Hann segir að verð hjá bílaleigum séu árstíðabundin og hafi alltaf verið. „Ég held að allar bílaleigur tvöfaldi verð yfir sumartímann hið minnsta. Þannig hefur það verið í mörg ár.“
Tengdar fréttir Hestar naga bíla reglulega Það kemur reglulega fyrir að bifreiðaeigendur verði fyrir tjóni vegna þess að hestar, eða önnur húsdýr, nagi lakkið af bílunum þeirra. Tjónið fæst ekki bætt með bifreiðatryggingunum. Vísir sagði frá því í gær að bræður sem voru við veiði í Eystri Rangá hefðu orðið fyrir verulegu tjóni þegar hestar nöguðu lakkið af húddinu og hliðum á Mazda 6 bifreið þeirra. 13. júlí 2010 10:29 Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Innlent Fleiri fréttir „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Sjá meira
Hestar naga bíla reglulega Það kemur reglulega fyrir að bifreiðaeigendur verði fyrir tjóni vegna þess að hestar, eða önnur húsdýr, nagi lakkið af bílunum þeirra. Tjónið fæst ekki bætt með bifreiðatryggingunum. Vísir sagði frá því í gær að bræður sem voru við veiði í Eystri Rangá hefðu orðið fyrir verulegu tjóni þegar hestar nöguðu lakkið af húddinu og hliðum á Mazda 6 bifreið þeirra. 13. júlí 2010 10:29