„Komum út í smá gróða“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 9. júlí 2015 17:33 Eigendur Basic House Effect luku við uppgjör vegna Sumargleðinnar í gær og gáfu Barnaspítala Hringsins 100 þúsund krónur. „
Við kláruðum bara að gera upp hátíðina í gær og í ljós kom að við komum út í smá gróða,“ segir Bjarni Hallgrímsson, einn eiganda viðburðarfyrirtækisins Basic House Effect. Fyrirtækið stóð í júní fyrir Sumargleðinni, grunnskólaballi nemenda í áttunda til tíunda bekk, og gaf Barnaspítala Hringsins 100 þúsund króna ágóða af hátíðinni í dag.Greint var frá því á dögunum að hátíðin hefði undanfarin tvö ár verið auglýst undir formerkjum þess að allur ágóði af henni rynni óskertur til Barnaspítala Hringsins. Forsvarsmenn kvenfélags Hringsins sögðust þó ekkert kannast við viðburðinn. Ekkert fé hefði runnið til félagsins og gaf Bjarni þær skýringar að hátíðin hefði aldrei komið út í gróða. Hann hefði stórtapað á henni í fyrra og í ár hefði hún komið út á núlli. Ballið hafi aldrei verið styrktarball sem slíkt. „Við höfðum bara miðað við mætingu og annað og töldum því að enginn ágóði hefði verið af hátíðinni. Þannig að þetta kom okkur á óvart en við erum ánægðir með þetta og vonumst til að geta margfaldað þessa upphæð á næsta ári,“ útskýrir Bjarni. „Við töluðum við Hringinn og þarna var bara um misskilning að ræða. Við höfðum látið spítalann sjálfan vita af þessu öllu saman en vissum ekki að við þyrftum að hafa sérstaklega samband við góðgerðarfélag Hringsins. Þannig að í dag eru allir sáttir og ætlum að halda áfram samstarfi okkar við Hringinn,“ bætir hann við.Í dag gáfum við Barnaspítala Hringsins gjöf!Þó gjöfin hafi ekki verið sú stærsta telur allt og vonumst við svo...Posted by Basic House Effect on 9. júlí 2015
Tengdar fréttir Vonast til að geta gefið til góðgerðarmála eftir að hafa haldið styrktartónleika Einn forsvarsmanna Sumargleðinnar segist hafa komið út í stórtapi í fyrra en vonast til að geta gefið fé til góðgerðarmála á næsta ári. 6. júlí 2015 16:45 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Vonast til að geta gefið til góðgerðarmála eftir að hafa haldið styrktartónleika Einn forsvarsmanna Sumargleðinnar segist hafa komið út í stórtapi í fyrra en vonast til að geta gefið fé til góðgerðarmála á næsta ári. 6. júlí 2015 16:45