Vonast til að geta gefið til góðgerðarmála eftir að hafa haldið styrktartónleika sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 6. júlí 2015 16:45 Bjarni Hallgrímsson segir að ekki um eiginlega styrktartónleika hafi verið að ræða.
Bjarni Hallgrímsson, einn eiganda viðburðarfyrirtækisins Basic House Effect, segist binda vonir við að geta gefið Barnaspítala Hringsins ágóða af Sumargleðinni á næsta ári. Hann hafi komið út í stórtapi eftir síðustu tvær skemmtanir en telur miklar líkur á einhverjum gróða næst.Óttast misnotkun Fyrirtækið hefur undanfarin ár staðið fyrir umræddri gleði, grunnskólaballi nemenda í áttunda til tíunda bekk, og auglýst það undir formerkjum þess að allur ágóði renni óskertur til góðgerðafélags Hringsins eða Rauða krossins. Þó hefur ekkert fé runnið til félaganna tveggja og sögðust forsvarsmenn þeirra í samtali við Stundina ekkert kannast við viðburðinn. Þau óttist að verið sé að misnota nöfn félaganna í kynningarskyni. „Ég hef alltaf haldið því fram að ég gefi ágóðan af miðasölunni. Þetta eru tónleikar en þeir koma sjaldnast út í gróða fyrsta árið. Þar getum við til dæmis bara nefnt Secret Solstice og Bestu útihátíðina á sínum tíma. Þessi hátíð óx tvöfalt í ár og kom út á sirka núlli þannig að ég vona að hún stækki enn meira og að þá verði almennilegur peningur til að gefa,“ sagði Bjarni í samtali við Harmageddon í dag og bætti við að hann persónulega hefði komið út í tveggja milljóna tapi. Hann hafi þó greitt allar sínar skuldir og fullyrðir að haft hafi verið samband við Hringinn áður en lagt hafi verið upp í auglýsingaherferð.„Eigum allt okkar undir“ Sigrún Soffía Hafstein, varaformaður kvenfélags Hringsins, segir í samtali við Vísi að enginn hafi haft samband við félagið. Hún hafi komið af fjöllum þegar hún fékk fregnir af viðburðinum. „Við Hringskonur erum mjög varkárar með hvernig farið er með merkið okkar og nafn Hringsins, enda eigum við allt okkar undir því landsmenn verða að geta treyst okkur. Þetta er mjög leiðinlegt en ég hugsa að ég slái bara á þráðinn til Bjarna og fái hann til að útskýra þetta almennilega fyrir mér,“ segir hún.„Ekki styrktarball sem slíkt“ Þegar Bjarni var spurður hvort eðlilegra hefði verið að sleppa því að nota nafn félaganna segir hann það fara eftir því hvernig á málið sé litið. „Yfirleitt er það upp á það að ef það hefði komið gróði þá hefði það litið út fyrir að ég væri að taka allan peninginn í vasann sjálfur. Þetta er ekki styrktarball sem slíkt, ef svo væri þá ertu að fá húsnæði gefins og tónlistarmenn gefa vinnuna sína, sem var ekki tilfellið,“ sagði hann. Þá líti krakkarnir ekki á það sem svo að um sé að ræða góðgerðartónleika. „Ef við gefum ekki núna þá gefum við bara næst.“ Sumargleðin var fyrst auglýst árið 2012. Hún var þó ekki haldin fyrr en árið 2014 og aftur í ár, hinn 11. júní í Kaplakrika en um er að ræða eitt stærsta grunnskólaball á landinu.Hlýða má á viðtalið við Bjarna í heild í spilaranum hér fyrir neðan.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira