Hlaupið gegn sjálfsvígum ungra karla Samúel Karl Ólason skrifar 25. júní 2015 19:11 „Markmið átaksins er að efna til vitundarvakningar meðal almennings til að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma hópi.“ Vísir/Getty
Rauði krossinn og Geðhjálp bjóða almenningi að taka þátt í opinni hlaupaæfingu tólf manna hlaupahóps undir merkjum Útmeð´a á laugardaginn. Hlaupaæfingin er liður í undirbúningi hlauparanna undir hringhlaup í kringum landið um næstu mánaðamót. Markmið hópsins er að vekja athygli á því að sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra íslenskra karlmanna og safna áheitum til að efna til vitundarvakningar um vandann. Hlaupið verður frá aðalskrifstofu Rauða kross Íslands, Efstaleiti 9, kl. 11 á laugardaginn. Boðið verður upp á tvær vegalengdir á opnu æfingunni, 3 km og 5 km, og er þátttakan öllum opin og ókeypis. Öllum hlaupurum verður upp á létta hressingu að loknu hlaupi. Í tilkynningu frá Rauða krossinum kemur fram að Geðhjálp, Hjálparsími Rauða krossins og hlaupahópurinn standa sameiginlega að átaks- og forvarnarverkefnisins Útmeð‘a. Með því slagorði eru ungir menn hvattir til að setja tilfinningar sínar í orð í því skyni að hafna ekki í tilfinningalegu öngstræti. „Markmið átaksins er að efna til vitundarvakningar meðal almennings til að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma hópi.“ Einnig kemur fram að fjórir til sex ungir menn taki líf sitt að jafnaði á hverju ári hér á landi. Á degi hverjum snýst rúmlega eitt símtal til Hjálparsíma Rauða krossins 1717 um sjálfsvíg, eigið eða annarra. Símtöl til hjálparsímans um sjálfsvíg voru 42% fleiri fyrrihluta ársins 2015 en fyrrihluta ársins 2014. Hægt er að styrkja hlaupið um 1.500 kr. með því að hringja í símanúmerið 904 1500 eða eða leggja inn á söfnunarreikning Geðhjálpar, 546 – 14 – 411114, kt. 531180 – 0469 valda upphæð. Einnig er hægt að styrkja verkefnið með frjálsum framlögum á hlaupaæfingunni. Stefnt er að því að vitundarvakningu gegn sjálfsvígum ungra karla verði ýtt úr vör með frumsýningu forvarnarmyndbands á Alþjóðlegum forvarnardegi gegn sjálfsvígum þann 10. september næstkomandi.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira