Ólíklegt að skotið hafi verið úr haglabyssu í Kópavogi í gær 3. júní 2015 19:30 Lögreglu hafa í dag borist fleiri tilkynningar frá íbúum sem heyrðu skothvell við fjölbýlishúsið í gær. VISIR/VILHELM
Lögreglan telur ólíklegt að skotið hafi verið úr haglabyssu í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gær þótt ekki sé komin fram nein skýring á hvelli sem fjöldi íbúa í nágrenninu tilkynnti lögreglu. Augljós ummerki eru þó um að áður hafi verið skotið úr haglabyssu í garði hússins. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar á fjórða tímanum í gær um skothvell í íbúð á jarðhæð við Hlíðarhjalla 53 í Kópavogi. Allt tiltækt lögreglulið var sent á vettvang auk sérsveitar ríkislögreglustjóra og var umsátur um húsið í sex klukkustundir. Það var síðan á níunda tímanum í gærkvöldi sem sérsveit ríkislögreglustjóra réðst inn í íbúðina en hún reyndist mannlaus. Í henni fannst haglabyssa auk skotfæra og samkvæmt heimildum fréttastofu fannst skotvopnið á gólfi íbúðarinnar og tóm skothylki við hlið þess. „Sá sem á íbúðina, hann var klárlega ekki í íbúðinni í gærdag. Þannig að í öllu falli er hann ekki hinn meinti skotmaður, ef einhver er,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu hafa í dag borist fleiri tilkynningar frá íbúum sem heyrðu skothvell við fjölbýlishúsið í gær.Á grundvelli þessara tilkynninga sem þið fáið í gær og fleiri í dag, gerið þið ráð fyrir því að skotið hafi verið úr haglabyssu í blokkinni í gær?„Við getum ekki útilokað það. En eftir því sem að dagurinn er að þróast hjá okkur þá finnst okkur það jafnvel ólíklegra og þess vegna erum við að skoða aðra möguleika,“ segir Ásgeir. En þó ekki hafi verið skotið úr haglabyssu við fjölbýlishúsið í gær er ljóst að það var gert á einhverjum tímapunkti eins og augljós ummerki eru um á grindverki fyrir utan íbúðina. Þá fundu íbúar um síðustu helgi högl úr skotvopni í garðinum og tilkynntu málið til lögreglu. Ekki hefur verið staðfest hvort eigandi íbúðarinnar hafi verið þar að verki en maðurinn hefur skotvopnaleyfi og er skráður fyrir vopninu sem fannst á heimili hans. Hann hefur ekki verið yfirheyrður. „Eftir að málinu lauk í gær, bæði í gærkvöldi og í morgun, hafa nokkrir íbúar í hverfinu haft samband við lögreglu og í raun og veru verið að tilkynna að þeir hafi mögulega heyrt hvelli sem gætu hafa verið skothvellir. En þá erum við að tala um einhverjar vikur aftur í tímann,“ segir Ásgeir. Heimildir fréttastofu herma að íbúum hafi verið tilkynnt af lögreglu í gærkvöldi hvar eigandi íbúðarinnar sé niðurkominn. Þeir íbúar sem fréttastofa ræddi við í dag segja málinu lokið og ekki sé ástæða til að hafa frekari áhyggjur.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira