Sigmundur Davíð um hjúkrunarfræðinga árið 2012: „Þetta er ótæk staða“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. júní 2015 19:08 Ríkisstjórnin hefur nú boðað til skipunar sáttanefndar. „
Grunndagvinnulaun nýútskrifaðs hjúkrunarfræðings á Landsspítalanum eru nú 280 þúsund. Það er viðurkennd staðreynd að álag á hjúkrunarfræðinga og aðra opinbera starfsmenn hefur stóraukist undanfarin ár. Það er sanngjörn krafa að stofnanasamningar hjúkrunarfræðinga verði endurnýjaðir eins og mælt er fyrir um í kjarasamningum þeirra. Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu má ekki verða til þess að við missum fleira hæft fólk úr þessum mikilvægu störfum.“ Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í grein á vefsíðu sinni 21. nóvember árið 2012. Grein hét „Sanngjörn krafa hjúkrunarfræðinga“ og hana má lesa í heild sinni hér. Það ár kröfðust hjúkrunarfræðingar kjarabóta en stofnanasamningar þeirra við Landspítalann höfðu þá verið lausir í rúmlega ár. Kjaradeilur þeirra náðu nýjum hæðum þegar fréttir bárust þess efnis að ákveðið hefði verið að hækka laun forstjóra Landspítala um 25 prósent eða 450 þúsund krónur.Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar hafa í nægu að snúast enda sinna um 500 manns störfum 2000 einstaklinga.VÍSIR/VILHELMSigmundur Davíð kallaði stöðuna þá grafalvarlega. „Hjúkrunarfræðingum er gefin sú skýring að vegna fjárskorts stofnana og LSH sé ekki hægt að endurnýja stofnanasamninga,“ sagði Sigmundur í grein sinni. „Þetta er ótæk staða. Ljóst er að sá niðurskurður sem heilbrigðisstofnanir á öllu landinu hafa þurft að þola undanfarin ár er hluti af þessum vanda. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár er mjög mikilvægt tekið verði tillit til þessa vanda og heilbrigðisstofnunum verði tryggt fjármagn til að endurnýja stofnanasamninga,“ sagði hann. Þá benti hann á að ef fer sem horfir stefni í mikla manneklu og að hætt sé við að fjöldi hjúkrunarfræðinga segi upp og leiti betri kjara annars staðar. Þegar starfi margir í Noregi. Í desember það ár sögðu 300 hjúkrunarfræðingar starfi sínu lausu vegna þess hve illa gekk að semja. Samningaviðræður hjúkrunarfræðinga við ríkið nú í ár hafa siglt í strand en hjúkrunarfræðingar fóru í verkfall nú í lok maí. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að skipa sérstaka sáttanefnd í deilunni en lítið hefur reynt á heimild fyrir slíkri nefnd í lögum.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut Sjá meira