Innlent

Hátíðarhöld Kópavogsbæjar hófust þrátt fyrir mótmæli lögfræðinga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ármann Kr. var sáttur með sína kökusneið.
Ármann Kr. var sáttur með sína kökusneið. mynd/kópavogsbær
Fjöldi manns gæddi sér á afmælisköku í boði Kópavogsbæjar í Smáralind í dag en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og bæjarfulltrúar skáru kökuna fyrir gesti og gangandi með dyggri aðstoð skáta úr Kópavogi.

Afmæliskakan er hluti af því sem bryddað er upp á í tilefni afmælis Kópavogs um helgina. Kópavogsbær bauð sundlaugargestum einnig upp á ís, kaffi og súkkulaði í sundlaugum bæjarins í dag. Þá var handverkssýning eldri borgara í félagsmiðstöðvum þeirra í dag og stendur hún yfir á morgun líka.

Á morgun verður svo efnt til stórtónleika í Kórnum í tilefni sextugsafmælis bæjarins. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 en húsið opnar klukkan 15. Hátt í 600 tónlistarmenn koma fram á tónleikunum, núverandi og fyrrverandi Kópavogsbúar. Meðal þeirra sem koma fram eru Dr. Gunni, Salka Sól, Erpur, Fræbbblarnir, Ríó tríó, kórar bæjarins og Skólahljómsveit Kópavogs. Kynnar eru Helgi Pétursson og Saga Garðarsdóttir.

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ eru íbúar hvattir til að taka strætó í Kórinn en frá klukkan tvö gengur strætó frá Hamraborg í Kórinn með viðkomu í Smáralind.

Stéttarfélag lögfræðinga hefur efnt til mótmæla við innganginn í Kórinn í kvöld klukkan 18:45.

Sjá einnig: Lögfræðingar mótmæla fyrir utan Kórinn

Ástæðan fyrir mótmælunum er meint verkfallsbrot sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu en hann gaf út tvö skemmtanaleyfi fyrir bæinn vegna árshátíðar starfsmanna bæjarins og 60 ára afmælishátíðar nú um helgina, meðal annars stórtónleika í Kórnum.


Tengdar fréttir

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók við bréfi

Fulltrúar BHM og Stéttarfélags lögfræðinga funduðu með sýslumanni höfuðborgarsvæðisins nú áðan þar sem skorað var á hann að draga til baka veitingu leyfa fyrir skemmtihaldi um helgina í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×